Vilja að Gunnar taki við Krossinum á ný Lovísa Eiríksdóttir skrifar 18. júlí 2013 23:30 Gunnar Þorsteinsson, betur þekktur sem Gunnar í Krossinum, nýtur enn stuðnings meðal söfnuðarins. Fréttablaðið/Anton
Stuðningsfólk Gunnars í Krossinum telur að hann eigi að hefja störf á ný hjá söfnuðinum sem fyrst, samkvæmt yfirlýsingu sem send var út í dag. Árlegur aðalfundur Krossins var haldinn 3. júní síðastliðinn en þar átti að skipa í nýja stjórn. Stuðningsmenn núverandi stjórnar notuðu umboð frá safnaðarmeðlimum til að kjósa fyrir þá sem ekki treystu sér til að mæta á fundinn. Vegna deilu um lögmæti umboðanna í kosningunni leystist fundurinn upp og urðu safnaðarmeðlimir afar heiftugir samkvæmt heimildum Vísis. Kallað var til lögreglu sem batt enda á upplausnarástand á fundinum. Ekki hefur enn verið haldinn aðalfundur hjá Krossinum í ár. Samkvæmt samþykktum safnaðarins á fundurinn að vera haldinn í apríl ár hvert eða eftir ákvörðun stjórnar. Í yfirlýsingu krefst stuðningshópurinn þess að núverandi stjórn Krossins víki eða boði til nýrra kosninga undir eins. „Við viljum Gunnar Þorsteinsson aftur sem leiðtoga kirkjunnar enda aldrei orðið vör við neitt ósiðlegt í hans fari. Við teljum ásakanir þeirra kvenna sem báru á hann sakir rökleysu og að þær snúist um völd og yfirráð í kirkjunni,“ segir í yfirlýsingunni. Sigurbjörg Gunnarsdóttir, núverandi forstöðumaður Krossins og dóttir Gunnars, segir að málið sé í skoðun og verið sé að kanna lögmæti kosninganna. „Þegar ferlinu lýkur verður boðað til fundar og kosið um nýja stjórn,“ segir Sigurbjörg og fullyrðir að málið snúist ekki um valdabaráttu við föður sinn. "Hann kom með fullt af fólki með sér á fundinn sem ég hef aldrei séð áður," bætir Sigurbjörg við.Jónína Ben eiginkona Gunnars í Krossinum. Mynd/KristinnJónína Benediktsdóttir, eiginkona Gunnars, segir að henni þyki eðlilegt að Gunnar fái vinnu sína sem forstöðumaður Krossins aftur. "Við búum í samfélagi þar sem ríkir nokkurskonar réttarkerfi. Máli Gunnars hefur verið vísað frá og því er eðlilegt að hann fái ævistarf sitt aftur," segir Jónína sem er meðlimur í óformlegum stuðningshóp Gunnars. Gunnar í Krossinum var ásakaður um kynferðisbrot gegn sjö konum á árunum 2010 til 2011.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira