Norska þungarokkaranum sleppt úr haldi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 18. júlí 2013 21:33 Vikernes hefur verið sleppt úr haldi. samsett mynd
Norska þungarokkaranum Kristian „Varg“ Vikernes hefur verið sleppt úr haldi. Hann var handtekinn í Frakklandi á þriðjudaginn, grunaður um að hafa skipulagt „stórfelld hryðjuverk“, eins og Vísir greindi frá fyrr í vikunni. Höfðu yfirvöld í Frakklandi fylgst með athöfnum hans á netinu um nokkurt skeið. Var þetta staðfest í samtali við fréttastofuna NRK. Sagði franski saksóknarinn Agnés Thibault-Lecuivre í viðtali við NRK að grunur hafi strax verið uppi um að hann ætti hlut í hryðjuverkunum því að hann hafði skrifað níð um gyðinga, múslima og fleiri. "Við teljum að hann hafi haft tengsl við öfga hægrimenn sem hugðu á hryðjuverk. Hann er grunaður um það. Við höfum sem stendur ekki fundið nákvæm gögn en við sjáum hvað rannsóknin leiðir í ljós," sagði Agnés. Gögnin gátu augljóslega ekki fært nægar sönnur á aðild Vikernes þar sem að honum hefur verið sleppt. Kristian ,,Varg" var meðlimur í hljómsveitinni Mayhem, þar sem hann spilaði á bassa, og er saga hljómsveitarinnar vægast sagt áhugaverð. Birti Vísir í gær umfjöllun Fréttablaðsins frá árinu 2007. Vikernes afplánar enn dóm sem hann fékk árið 1994 fyrir morðið á Øystein Aarseth, gítarleikara svartmálmsveitarinnar Mayhem, árið áður.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira