Ráðherra sagaði vinkonu sína í sundur Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. maí 2013 13:42 Ráðherrann þykir liðtækur með sögina.
Katrín Jakobsdóttir, fráfarandi menntamálaráðherra, og Halldóra Björt Ewen, kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð, verða teknar formlega inn í Hið íslenska töframannagildi, fyrstar kvenna. „Ég veit ekki hvað ég á að segja. Við förum á fund þann 29. maí þar sem ég geri ráð fyrir því að við verðum teknar formlega inn,“ segir Halldóra, en þær vinkonur byrjuðu að töfra á háskólaárum sínum og hafa haldið því við reglulega. Halldóra viðurkennir að pólitískur ferill Katrínar hafi vissulega sett strik í reikninginn, en þó hafi þær komið fram á árshátíð Stjórnarráðsins árið 2009 og segir hún það hafa verið hápunkt ferilsins. Aðpurð hvort hún hafi sagað ráðherra í sundur segir Halldóra svo ekki vera. „Nei, en ráðherra hefur sagað mig í sundur. Svo höfum við verið með áhættuatriði þar sem ég fer inn í töfrakassa og ráðherra hefur stungið í gegnum mig átta töfrasverðum. Svo gubbum við líka eggjum og látum fótleggi hverfa.“ Halldóra segir það heiður að vera tekin inn í töframannagildið en vill sem minnst segja um það hvernig vinkonurnar lærðu töfrabrögðin. „Stundum á maður greinilega að sleppa því að svara símanum,“ sagði Katrín skellihlæjandi þegar Vísir bar töfrabrögðin upp á hana. „En jú, ég get staðfest þetta. Ég sagaði hana í sundur.“
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fleiri fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira