Innlent

Útgerð og áhöfn skipta með sér fimmtungi

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/GVA
reglugerð kveður á að útgerð og áhöfn skipa skipta nú með sér 20 prósentum af andvirði selds lúðuafla sem veiðist sem meðafli.

Í tæp tvö ár hefur allt söluandvirði lúðu runnið til rannsókna. Beinar lúðuveiðar eru enn bannaðar.

Nýju reglunum er ætlað að hvetja sjómenn og útgerðir til þess að koma að landi með þá lúðu sem veiðist sem meðafli. Sé lúðan lífvænleg skal þó umsvifalaust sleppa henni.

Þau 80 prósent sem eftir eru af söluandvirðinu munu áfram renna til rannsókna.-skó




Fleiri fréttir

Sjá meira


×