Innlent

Aðsókn í Foreldrahús eykst stöðugt

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
"Þjónustan sem Foreldrahúsið veitir er fjölbreyttari nú en verið hefur,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri.
"Þjónustan sem Foreldrahúsið veitir er fjölbreyttari nú en verið hefur,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri. fréttablaðið/Stefán
„Hópurinn sem leitar til okkar vegna kannabisneyslu ungmenna stækkar stöðugt og virðist sá vandi vera orðinn töluvert stór,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri hjá Vímulausri æsku - Foreldrahúsinu.

Hún getur þess að í fyrra hafi verið tekin 1.180 viðtöl við foreldra og ungmenni í Foreldrahúsinu, sem er í Borgartúni 6, og af þeim hafi um 900 verið vegna vímuefnavanda unglinga. „Önnur viðtöl eru sálfræðiviðtöl en fjöldi þeirra er einnig vegna vímuefnavanda. Það sem af er þessu ári virðist fjöldi þeirra sem leitar til Foreldrahússins fara vaxandi eins og undanfarin ár. Þörfin fyrir aðstoð og úrræði eykst stöðugt.“

Að sögn Guðbjargar voru 97 foreldrar í fyrra í stuðningshópum fyrir foreldra barna sem eru í vímuefnaneyslu eða hafa verið það. „Þá var farið í gang með sérstakt sjálfstyrkingarnámskeið fyrir foreldra til að styrkja sjálfsmynd þeirra og efla vitund þeirra í foreldrahlutverkinu, sem og færni til að skapa og viðhalda heilbrigðum og nánum tengslum við börnin sín. Fullbókað hefur verið á þessi námskeið.“

Guðbjörg tekur það fram að þótt að mestu hafi verið unnið með vímuefnavanda unglinga áður fyrr sé þjónustan fjölbreyttari nú. Unnið sé með ýmiss konar önnur vandamál, t.d. einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda. Fyrirlestrar hafa verið víðsvegar um landið í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög.

„Við höfum auk þess haldið sjálfsstyrkingarnámskeið gegnum verkefnið Starfskraft sem er fyrir ungmenni sem eru hvorki í námi né vinnu og einnig fyrir Kvennasmiðjuna. Námskeið hafa jafnframt verið haldin í samstarfi við Ljósið fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Það er því mjög stór hópur sem nýtur þjónustu okkar á einn eða annan hátt.“

Í fyrra sóttu nær fimm hundruð börn og unglingar sjálfsstyrkingarnámskeið á vegum Foreldrahúss í Reykjavík og Hafnarfirði.

Samtímis því sem eftirspurn eftir þjónustu eykst hefur reynst erfiðara að afla fjár til starfseminnar, að sögn Guðbjargar. „Það hefur þrengt að okkur eins og mörgum félagasamtökum. Nægilegt fé er því ekki tryggt og fjáröflun er stöðugt vandamál. Þó hefur gengið að halda úti grunnstarfsemi hingað til eins og áður. Fé sem við fáum frá ríkinu og Reykjavíkurborg til starfseminnar hefur verið skorið niður. Við höfum því þurft að reiða okkur á velvilja fyrirtækja og einstaklinga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×