Innlent

„Það er verið að brjóta niður drauminn manns“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
„Þarna erum við að vinna með erkitýpur,“ útskýrir Inga en fjölbreytt nám er í skólanum sem er þegar kominn með góðan orðstír innan leiklistargeirans í Danmörku.
„Þarna erum við að vinna með erkitýpur,“ útskýrir Inga en fjölbreytt nám er í skólanum sem er þegar kominn með góðan orðstír innan leiklistargeirans í Danmörku. Mynd/CISPA
Inga María Eyjólfsdóttir hóf nám í dönskum leiklistarskóla haustið 2012 en neyddist til þess að hætta í skólanum þegar yfirmaður skólans varð uppvís að fjármálamisferli.

„Yfirmaður skólans rak skyndilega alla kennarana þegar hann sá í einkatölvupóstum þeirra að þau voru með hugmyndir um að stofna einhvern tímann í framtíðinni sinn eigin skóla,“ útskýrir Inga María. „Við nemendurnir vorum ekki par sáttir við að vera án kennara og ákváðum í samstarfi við þau að stofna okkar eigin skóla. Þegar við fórum að rannsaka hvernig skólinn hafði verið fjármagnaður þá komumst við að því að nöfnin okkar höfðu verið nýtt til þess að svindla peninga út úr kommúnunni.“

Svindlið var með þeim hætti að yfirmaður skólans fékk styrki fyrir að vera með námskeið í nafni nemenda sem voru aldrei haldin. „Við vitum ekkert hvar þessir peningar eru núna,“ segir Inga. Málið var kært til lögreglu en málaferlunum er ekki lokið. Fjallað hefur verið um málið í dönskum fjölmiðlum.

Skólinn hét Film og teaterskolen Holberg og var hann með inntökupróf á Íslandi í febrúar í fyrra.

„Skólinn sem við stofnuðum svo heitir CISPA,“ segir Inga. CISPA stendur fyrir Copenhagen International School of Performing Arts. „Hann er áframhald af hinum skólanum, starfar á sama námsgrundvelli. Ég er eini íslendingurinn sem ákvað að halda áfram. Hinir sáu ekki fram á að geta haldið áfram af því að þau fengu ekki lán frá LÍN.“

Nú er hún í fjórum störfum til þess að fjármagna önnina. „Ég er að vinna á kaffihúsi, svo tek ég að mér heimilisþrif, ég passa börn og ég vinn á bar.“

Spurð að því hvar hún finni tíma og orku til þess að sinna störfunum ásamt fullu námi segir hún: „Í viljanum til að gefast ekki upp. Ég sé ekki annað fyrir mér heldur en að gera þetta sem ég er að gera.“

Hún viðurkennir þó að hún sé orðin mjög þreytt. „Ég veit að ég er að keyra mig út. Maður harkar samt áfram.“

Inga sótti um styrk til Hafnarfjarðarbæjar í sumar og bíður nú eftir svörum. „Þeir gefa sig út fyrir að gefa menningarstyrki. Ég er Hafnfirðingur, fædd og uppalin þar, og lít á mig sem menningarlegt fyrirbæri þannig séð,“ segir hún og hlær. Hún sendi einnig menntamálaráðherra bréf í tvígang í því skyni að biðja um aðstoð til þess að fjármagna nám sitt en hefur ekki fengið svör.

„Ef ég næ ekki að klára að borga þá þarf ég að hætta og byrja að vinna til þess að borga fyrir það nám sem ég er þegar búin með. Þá missi ég líka heimili mitt af því að ég bý á stúdentagörðum.“

„Þetta er ömurlegt,“ viðurkennir Inga. „Það er verið að brjóta niður drauminn manns. Planið að koma til Danmerkur, fara í þennan skóla og hafa fengið lánað fyrir því til þess að mennta sig í því sem maður vill er allt í einu svo brothætt.“

Helst myndi hún þó vilja að LÍN gæti haldið áfram að lána henni fyrir náminu. „Mér þætti rosalega vænt um að þau myndu lána mér áfram til þess að ég geti klárað skólann. Til þess að fá að klára það sem ég byrjaði. Það er ekki hægt að halda áfram annars staðar,“ segir hún.

Inga María hefur búið til viðburð á Facebook þar sem hún biður fólk að sjá af smá aur til þess að styrkja hana í náminu á meðan skólinn er ekki lánshæfur hjá LÍN. Viðburðinn má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×