Friðlýstar minjar að tapast víða um land Svavar Hávarðsson skrifar 10. apríl 2013 12:00 Mannabein frá 13. öld liggja eins og hráviði í örfoka landinu á Akbraut. Mynd/Ragnheiður
fornleifar Friðlýstar fornminjar við bæinn Akbraut í Rangárvallasýslu hafa orðið illa úti vegna uppblásturs. Bregðast þarf við hið fyrsta til að verja minjarnar eða rannsaka þær áður en allt er horfið, er álit fornleifafræðinga. Bein úr kirkjugarðinum á staðnum var aldursgreint fyrir nokkrum árum og reyndist vera frá 13. öld. Svipuð eyðilegging er uppi á teningnum á minjastöðum um allt land þar sem náttúruöflin eru stórtæk. Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Hólum, segir að aðkoman við bæinn Akbraut sé frekar dapurleg. „Þarna er 13. aldar kirkjugarður að blása upp og er orðinn mjög illa farinn. Beinin liggja þarna innan um grjótið. Það þarf að bregðast við hið snarasta til að verja minjarnar eða rannsaka þær áður en það verður um seinan. Það þarf fjármagn, svo einfalt er það,“ segir Ragnheiður. Árið 1998 sótti Fornleifadeild Þjóðminjasafns Íslands tvisvar um fjárveitingu frá fjárlaganefnd Alþingis til að gera rannsókn á minjunum í landi Akbrautar. „Á þeim tíma létum við aldursgreina eitt bein sem reyndist vera frá miðri 13. öld. Við lítum á þetta sem einstakar minjar,“ segir Ragnheiður. Árið 1989 var lögfest að ríkissjóður ætti að standa straum af því að verja friðlýstar fornminjar, sem eru um 800 á landinu. Ragnheiður veit ekki til þess að fjármagni hafi verið veitt til þessa verkefnis, að minnsta kosti ekki nægilegu. Stjórnvöldum sé ljós staða minjavörslunnar og verði að efla hana með því að leggja henni til meira fé og fjölga starfsfólki á sviðinu. Draga þurfi upp áætlun til að rannsaka og verja friðlýstar minjar og eyrnamerkja fjármagn því verkefni. „Í þessu felast tækifæri; það er mikið atvinnuleysi á meðal fornleifafræðinga og þetta er verkefni sem ætti að setja í forgang,“ segir Ragnheiður. En minjarnar við Akbraut eru ekki einsdæmi. Auk þess að bjarga minjum á Kolkuósi í Skagafirði undan eyðingaröflum náttúrunnar á síðustu árum hefur Ragnheiður að undanförnu kannað ástand ýmissa minjastaða og komist að því að víða eru að tapast mjög áhugaverðar minjar. Nefnir hún Reykjanes sem dæmi þar sem minjar eru að verða hafinu að bráð. „Þar eru mjög áhugaverðar minjar að glatast. Ef við eigum friðlýstar fornminjar, og samkvæmt orðanna hljóðan því einstakar, þá ættum við að gera meira til að verja þær,“ segir Ragnheiður.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira