Boða útvarpsstjóra til sín vegna leifturljósa Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. apríl 2013 12:00 Langbylgjumastur á Eiðum.
Íbúar í nágrenni langbylgjumastursins á Eiðum kvarta ákaft undan taktlausum og ofurbjörtum leiftrum frá mastrinu. Þeir vilja nýjan ljósabúnað eða að mastrið fari annað. Bæjarstjórinn tekur undir þetta og vill fá útvarpsstjóra til fundar eystra. „Þetta er eins og að vera með sterk, blikkandi diskóljós í andlitinu nánast allan sólarhringinn," segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, sem vill útvarpsstjóra á fund vegna bilaðra öryggisljósa í langbylgjumastrinu á Eiðum. Öryggisljósin í hinu 220 metra háa Eiðamastri eiga að vara flugmenn við mastrinu. Ljósin hafa verið heimamönnum mikill þyrnir í augum vegna þess hversu títt þau eru biluð og senda þá firnabjart, krampakennt leiftur út yfir sveitina. Úrbóta hefur oft verið krafist og nú hefur enn einum undirskriftalistanum verið komið til bæjarstjórnarinnar í von um að hún grípi inni í. Íbúarnir segja undarlegt að önnur ljósin, sem sögð eru þjóna flugöryggi, séu sum biluð langtímum saman á meðan hin ljósin senda út af alltof miklum styrk og úr takti. Þórarinn Ragnarsson á Brennistöðum sendi bæjarstjóra bréf í eigin nafni og tekur þar undir með Eiðamönnum. „Nú verða þetta sextán ár í haust sem fólk hefur þurft að búa við þetta ástand, sem er auðvitað óviðunandi og áreitið af ljósunum rosalegt og engin leið að venjast þessu," skrifar Þórarinn bæjarstjóranum. Að sögn Þórarins hefur staðan verið sérlega slæm í vetur. „Því það hafa verið svo mikil svell og harðfenni þannig að blikkið endurspeglast um allar jarðir og fjallið líka." Íbúarnir segjast ekki una ástandinu lengur. Annaðhvort verði að skipta um ljósabúnað „eða hreinlega að þessu mannvirki verði í heild sinni að finna annan stað fjarri mannabyggð". Björn bæjarstjóri segir útvarpsmenn hafa viðurkennt að hafa á sínum tíma farið ódýra leið í ljósabúnaðinum og fengið það í bakið. „Það er spurning hvort við getum hreinlega heimilað stöðu mastursins lengur ef það verður ekki við þessu brugðist. En ég vil gjarnan trúa því að það sé hægt að leysa þetta án þess að taka niður mastrið," segir Björn. Bæjaryfirvöld hafa sem fyrr segir óskað eftir útvarpsstjóra á fund. „Okkur hefur verið boðið að koma til fundar fyrir sunnan en það er ekki það sem við erum sækjast eftir. Það er langbest að fara yfir svona hluti á staðnum," segir bæjarstjórinn.
Tengdar fréttir Krampakennd leiftur úr biluðu ljósamastri Héraðsbúi sakar Ríkisútvarpið um skeytingarleysi með því að laga ekki biluð leifturljós í langbylgjumastri þrátt fyrir ábendingar um ónæði af þeim. Um sé að ræða viðvörunarljós vegna flugumferðar en hending sé hvernig þau virki. 24. nóvember 2011 09:00 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira
Krampakennd leiftur úr biluðu ljósamastri Héraðsbúi sakar Ríkisútvarpið um skeytingarleysi með því að laga ekki biluð leifturljós í langbylgjumastri þrátt fyrir ábendingar um ónæði af þeim. Um sé að ræða viðvörunarljós vegna flugumferðar en hending sé hvernig þau virki. 24. nóvember 2011 09:00