Gjald á kvikmyndun í Þingvallaþjóðgarði 6. apríl 2013 06:00 Náttúrufegurðin á Þingvöllum er eftirsótt sviðsmynd kvikmyndagerðarmanna sem brátt þurfa að greiða gjald fyrir að athafna sig í friðlandinu. Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta getur verið alveg gríðarlega umfangsmikið,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um vaxandi umsvif kvikmyndagerðarfólks í þjóðgarðinum. Nýju gjaldi er ætlað að fjármagna aukið eftirlit með þeirri starfsemi. „Það er óheimilt að kvikmynda í garðinum án sérstaks leyfis og það hefur alltaf verið þannig,“ útskýrir Álfheiður. „Þetta er meðal annars vörn gegn því að menn fari að gera Þingvelli að sínu lógói eða taka þjóðgarðinn í auglýsingaskyni fyrir eitt eða annað. Þetta tíðkast alls staðar í heiminum.“ Að sögn Álfheiðar hefur fram til þessa verið lagt sérstakt tryggingargjald á kvikmyndargerðarfyrirtækin vegna hugsanlegs skaða sem þau geti valdið og um þetta séu gerðir samningar. „Það er frægt að það var nánast kveikt í öllum gróðri í Almannagjá fyrir um tuttugu árum. Þá var verið að taka einhverja drekamynd með eldtungum,“ rifjar formaðurinn upp og minnir á óhapp sem varð við Silfru í nóvember í fyrra þegar málningarflygsur af búnaði kvikmyndatökumanna menguðu gjána. Þingvallanefnd samþykkti í lok janúar að leggja á umrætt gjald ásamt því að innleiða gjald fyrir þvottaaðstöðu og sturtur á tjaldstæðum. Af mættum nefndarmönnum lýsti aðeins Ragnheiður Elín Árnadóttir úr Sjálfstæðisflokki sig andvíga gjaldtökunni. Vísaði Ragnheiður til þess að ekki væri búið að útfæra þá þjónustu sem rukka ætti fyrir. Nefndin fól þjóðgarðsverði að útbúa gjaldskrá en hún hefur ekki verið gefin út. Álfheiður segir ljóst að gjaldið eigi að standa undir umsýslu, eftirliti og aðstoð við kvikmyndatökuliðin. „Þetta er til þess að hlutirnir geti gengið smurt fyrir sig. Við viljum til að mynda ekki að einhverjir útlendir kvikmyndatökumenn séu að bægja ferðamönnum frá. Það er réttara að það sé starfsmaður þjóðgarðsins sem veki athygli á því hvað fer fram,“ segir Álfheiður og undirstrikar að ekki sé átt við myndatökur almennings. „Það er ekki verið að banna heimavideó af fjölskyldunni.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Sjá meira