Vill aukið eftirlit með ólöglegri steranotkun Hanna Ólafsdóttir skrifar 18. mars 2013 06:00 Notkun stera hefur færst í vöxt á meðal þeirra sem stunda líkamsrækt.
Lyfjaeftirlit Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, (ÍSÍ), hefur ekki heimild til að sinna eftirliti með notkun ólöglegra stera inni á líkamsræktarstöðvum. Notkun stera hér á landi hefur aukist til muna á síðustu árum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er lyfjanotkun á meðal þjálfara víðtækt vandamál og auðvelt er að nálgast stera til kaups inni á líkamsræktarstöðvum. „Okkar yfirráð er bara með þeim íþróttagreinum sem falla undir sambandið. Það á sömuleiðis við okkar fræðslustarf, þannig að okkar fræðslu- og forvarnarstarf miðast við þá iðkendur sem þar eru. Við höfum hins vegar haft mjög miklar áhyggjur af ástandinu," segir Skúli Skúlason, formaður lyfjaráðs ÍSÍ. Sambandið hafi ekki aðgang að líkamsræktarstöðvum og því geti starfsmenn þess ekki stundað eftirlit eða fræðslu inni á þeim. Skúli segir að litið sé sérstaklega til Danmerkur og Noregs sem fyrirmyndir hvað varðar eftirlit með ólöglegri steraneyslu en þar eru líkamsræktarstöðvar skyldaðar til að merkja hvort þær séu með lyfjaeftirlit eða ekki. Einnig skrifa viðskiptavinir undir samning við kaup á líkamsræktarkorti þar sem þeir samþykkja að gangast undir lyfjapróf ef grunur kemur upp um misnotkun lyfja. Auk þess verða allir starfsmenn að samþykkja óundirbúin lyfjapróf. „Þetta kerfi höfum við mjög mikinn áhuga á að taka upp. Aðalvandamálið er að kostnaðurinn við þetta fellur þá á stöðvarnar og þær kannski bera það fyrir sig að þetta sé mjög dýrt. Danirnir hafa sett þetta mjög skemmtilega upp og þetta hefur aukið aðsóknina hjá þeim stöðvum sem eru með eftirlit." Að sögn Skúla er búið að vinna grunnvinnu varðandi það að breyta núverandi skipulagi úr því að lyfjaeftirlitið sé stofnun undir ÍSÍ í það að vera sjálfstæð stofnun með skipaða stjórn frá ÍSÍ og menntamálaráðuneytinu á sama hátt og er í Danmörku og Noregi. Það er von Skúla að hún verði komin á laggirnar fyrir árslok. „Það myndi veita okkur meiri möguleika á að vinna með líkamsræktarstöðvunum en einnig með tollinum, fangelsunum og lögreglunni í að stunda forvarnarstarf og sinna eftirliti úti í samfélaginu."
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Fleiri fréttir Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sjá meira