Mjög góður andi á Íslandi Freyr Bjarnason skrifar 9. janúar 2013 11:00 Christoph "Cico" Nicoalisen tók upp Falskan fugl.
Kvikmyndatökumaðurinn Christoph "Cico" Nicoalisen, sem tók upp Óskarsverðlaunastuttmyndina Toyland, hafði gaman af vinnu sinni við Falskan fugl sem hófst síðasta vor. Myndin verður frumsýnd 22. febrúar. "Það var mjög áhugavert því aðstæðurnar voru þannig að við höfðum úr nánast engu fjármagni að moða. En ég var mjög ánægður með andann á vinnustaðnum og hjá öllum þeim sem komu nálægt þessu verkefni," segir Nicolaisen, sem er staddur hér á landi í nokkra daga. "Mér finnst svona verkefni að sumu leyti skemmtilegri en dýrari myndir. Allir lögðu hjarta sitt og sál í verkefnið og þess vegna var þetta mjög gaman." Hann kynntist leikstjóranum Þór Ómari Jónssyni í Suður-Afríku þegar þeir störfuðu saman við gerð þýskrar lottóauglýsingar. "Við urðum vinir og héldum sambandi. Hann hefur gaukað að mér hugmyndum og loksins gekk samstarfið upp með Falskan fugl. Hann er líka með þá hugmynd í kollinum að taka upp Beðið eftir Godot en það yrði að sumri til þegar hægt yrði að mynda allan sólahringinn." Nicolaisen, sem er frá Þýskalandi en á hálfdanskan föður, hefur mikla trú á Fölskum fugli. "Mér finnst handritið frábært. Það er grimmd í því en við gátum ekki sýnt hana almennilega án þess að vera með mikinn pening. Við ákváðum í staðinn að skilja eitthvað eftir fyrir ímyndunarafl áhorfenda og það var mjög góð aðferð," segir hann.
Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Sjá meira