Lífið

Handtekinn fyrir ölvun

Josh Brolin var handtekinn fyrir ölvun á almannafæri.
Josh Brolin var handtekinn fyrir ölvun á almannafæri. nordicphotos/getty
Leikarinn Josh Brolin var handtekinn á nýársdag fyrir ölvun á almannafæri. Brolin var handtekinn skömmu fyrir miðnætti á nýársdag en sleppt úr haldi næsta morgun.

Vefsíðan TMZ.com hefur eftir heimildarmanni að Brolin hafi verið úti að skemmta sér með vinum sínum þetta umrædda kvöld og drukkið heldur ótæpilega. Leikarinn hefur ekki verið kærður fyrir atvikið og er því laus allra mála. Þetta er í þriðja sinn sem Brolin kemst í kast við lögin sökum ölvunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.