Innlent

Vinkona Eyglóar komst af í hamförunum í Oklahoma

Jakob Bjarnar skrifar
Fá orð fá lýst eyðileggingarmætti hvirfilbylsins sem gekk yfir Oklahoma í gær.
Fá orð fá lýst eyðileggingarmætti hvirfilbylsins sem gekk yfir Oklahoma í gær.

"Ég fylgist með þessu á hverju einasta ári en alltaf á vorin fara hvirfilbylir þarna yfir. Síðast þegar veður í líkingu við þetta gekk yfir, það var fyrir rúmum tólf árum, eða einu og hálfu ári áður en ég fór út sem skiptinemi. Þá létust ekki eins margir og nú en hann var fólki í fersku minni meðan ég var þarna úti," segir Eygló Harðardóttir alþingismaður.

Hugur Eyglóar er með íbúum Moore, Oklahoma, sem verst varð úti þegar gríðarmikill fellibylur gekk þar yfir í gær; að minnsta kosti 91, þar af 20 börn, eru talin af í eyðileggingunni. Hún var skiptinemi í Oklahoma, nam þar markaðsfræði, og segir sérstaklega gott fólk þarna og að þar hafi verið gott að vera.

"
Ég fékk að upplifa óvissuna og hræðsluna við hvirfilbylina sem fara þar í gegn ár hvert á vorin," segir Eygló sem á vinkonu frá veru sinni þar ytra. "Ég var einmitt í sambandi við hana í gegnum Facebook áðan. Hún var að láta mig vita að það væri í lagi með hana. Mér létti mjög við það."

 

Hugur Eyglóar Harðardóttur er hjá fólkinu í Oklahoma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×