Sjómenn án kjarasamninga í þrjú ár Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 26. október 2013 11:00 Útvegsmenn vilja breyta hluaskipakerfinu á þá lund að sjómenn taki þátt í auknum olíukostnaði og greiðslu veiðigjalda. Sjómenn segja það ekki koma til greina. Fréttablaðið/Vilhelm
Kjarasamningar sjómanna og útvegsmanna hafa verið lausir í tæp þrjú ár og mikið virðist bera í milli svo menn komist að samkomulagi um gerð nýs kjarasamnings. Deilan snýst að stærstu leiti um hvort að það eigi að breyta aflahlutaskiptakerfinu. „Eins og málin standa má að meðaltali gera ráð fyrir að sjómenn fái í kringum 40 prósent af aflaverðmæti. Ljóst má vera að taka verður tillit til þess aukna kostnaðar sem stóraukið veiðigjald og síhækkandi olíukostnaður hefur falið í sér og lent allur á útgerðarhliðina við hlutaskiptin,“ sagði Adolf Guðmundsson formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á aðalfundi samtakanna. „Það er ekki inn í myndinni að hlutaskiptakerfinu verði breytt í þá veru að við förum að borga fyrir þá auðlindagjald og eitthvað slíkt. Auðlindagjaldið er lagt á hagnað útgerðar og þeir geta borgað það sjálfir. Við ætlum ekki að borga fyrir þá,“ segir Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambands Íslands.Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ.Adolf segir á hinn bóginn að þangað til þessi mál verða óútkljáð verði kjaramál sjómanna í óvissu. Kerfið sem kjarasamningarnir byggi á sé að útgerðarmenn og sjómenn deili kjörum í gegnum hlutaskipti. Með því séu hagsmunir sjómanna og útgerðar tengdir hvað varðar afkomu af veiðum einstakra skipa. „Sú hugsun að hagsmunir útvegsmanna og sjómanna haldist í hendur hefur að miklu leyti tapast og það þarf að leiðrétta,“ segir hann ennfremur. „Við erum með samninga um hlutaskipti og þar gert ráð fyrir að við tökum þátt í kostnaði útgerðarinnar. En það er ljóst að við ætlum ekki að taka meiri kostnað á okkur en við berum í dag. Það vita útvegsmenn og það er ástæðan fyrir því að ekki hefur tekist að semja í þrjú ár,“ segir Sævar.Sævar Gunnarsson formaður Sjómannasambands Íslands.Fyrir einu og hálfu ári vísuðu útvegsmenn deilunni til Ríkissáttasemjara. Menn hafa fundað nokkuð oft hjá sáttasemjara án þess að samningsflötur hafi fundist. Sjómenn segja að það sé útilokað að þeir fari í einhverjar aðgerðir til að ná fram nýjum kjarasamningi. „Við förum ekki í átök við þá til að ná fram kröfum þeirra. Það er alveg ljóst,“ segir Sævar. Hann segir að menn séu alveg rólegir því það sé sameiginlegur skilningur deilenda að sá kjarasamningur sem fallinn er úr gildi haldi utan um réttindamál sjómanna. Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður hjá sáttasemjara en samkvæmt heimildum fréttastofu líður að því að boðað verði til hans.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Sjá meira