Þarf að finna hentugt skip fyrir Landeyjahöfn Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 6. nóvember 2013 07:00 Landeyjahöfn var opnuð við hátíðlega athöfn árið 2010 en það hefur alltaf legið fyrir að Herjólfur henti ekki fyrir höfnina. Mynd / Vilhelm Gunnarsson
Baldur mun ekki sigla á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar en sýnt hefur verið fram á að Baldur gæti siglt um 70 fleiri daga en Herjólfur yfir vetrartímann. Undanfarin ár hefur bæjarráð Vestmannaeyja reynt að finna skip sem hentar betur til siglinga á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Baldur getur siglt í 3,3 metra ölduhæð en Herjólfur aðeins í 2,5 metra ölduhæð. Baldur hefur þó ekki haffærnisleyfi til að sigla á þessu tiltekna hafsvæði. Þegar Landeyjahöfn var tekin í notkun árið 2010 var vitað að Herjólfur hentaði ekki fyrir höfnina og hefur alla tíð staðið til að fá annað skip. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að sá fjöldi daga, sem Herjólfur getur ekki siglt yfir vetrartímann eða þurfi að fara um Þorlákshöfn, sé óviðunandi. „Frátafir vegna ölduhæðar verða 30 til 40 prósent á tímabilinu nóvember til mars þegar siglt er á Herjólfi. Væri siglt á skipi sem réði við 3,5 metra ölduhæð færu heildarfrátafir niður í 15 til 20 prósent og tiltölulega fáir heilir dagar myndu falla út.“Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir þjóðhagslega hagkvæmt að finna hentugra skip en Herjólf til að sigla á milli Eyja og Landeyjahafnar.aðsend myndElliði segir þjóðhagslega hagkvæmt að finna hentugra skip. Það komu að meðaltali 120 þúsund manns á ári með Herjólfi frá Þorlákshöfn en frá Landeyjahöfn komu 300 þúsund manns til Eyja í fyrra. Einnig kostar hver dagur sem sigla þarf til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar milljón krónum meira. „Vestmannaeyjaferja hefur aldrei orðið eins gömul og Herjólfur er orðinn nú. Skipið er líka hannað til að sigla í Þorlákshöfn, það er of djúprist fyrir Landeyjahöfn og ræður þar að auki ekki við næga ölduhæð,“ segir Elliði. Að sögn Elliða er styttri siglingarleið hagkvæm fyrir atvinnulífið og ferðamennsku og bætir lífsskilyrði í Eyjum. Í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja er harmað að Baldur fái ekki undanþágu til siglinga. Þar sem fullreynt sé að finna heppilegt skip til siglinga í Landeyjahöfn og fyrir liggi að allar stórvægilegar breytingar á höfninni séu fjarri, hvetji bæjarráð innanríkisráðherra til að ráðast strax í útboð á nýrri ferju til siglinga í Landeyjahöfn. Sú ferja þurfi að bera fleiri bíla en Herjólfur, ráða við að lágmarki 3,5 metra ölduhæð og vera búin til siglinga í Þorlákshöfn.
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira