Hver er þessi Conny? 14. mars 2013 06:00 Upptökustjórinn Conny Plank vann m.a. með Kraftwerk, Neu! og DAF.
Þýska „krautrokkið“ sem kom fram á áttunda áratugnum lifir góðu lífi á meðal tónlistaráhugamanna í dag. Það má heyra áhrif frá því hjá mörgum tónlistarmönnum af yngri kynslóðinni og frumkvöðlarnir njóta enn mikillar virðingar. Á meðal eftirminnilegustu tónleika síðasta árs á Íslandi voru t.d. tónleikar Damos Suzuki, fyrrum söngvara Can, í Gamla bíói og mikil eftirvænting ríkir fyrir komu Kraftwerk á Airwaves 2013. Kraftwerk og Damo Suzuki eiga það sameiginlegt að hafa unnið undir upptökustjórn Connys Plank, en hann er oft nefndur sem einn helsti áhrifavaldur krautrokksins. Konrad Plank var fæddur 3. maí 1940. Hann hóf ferilinn sem hljóðmaður hjá Marlene Dietrich en í lok sjöunda áratugarins byrjaði hann að vinna sem upptökustjóri. Hann var einn af frumkvöðlunum í því að nota hljóðverið á skapandi hátt. Hann notaði möguleika fjölrásakerfisins til hins ýtrasta og bjó til stemningu í tónlistinni með elektrónískum hljóðmyndum. Plank tók m.a. upp fyrstu fjórar plötur Kraftwerk, allar plötur Neu!, plötur Cluster og DAF. Upp úr 1980 varð hann mjög eftirsóttur og hljóðritaði þá m.a. Eurythmics, Ultravox og Killing Joke svo nokkur dæmi séu tekin. Conny Plank lést úr krabbameini árið 1987, 47 ára að aldri. Fyrir mánuði kom út nýtt safn tileinkað minningu Connys Plank. Það heitir Who‘s That Man – A Tribute To Conny Plank. Þetta eru fjórir diskar. Á þeim tveimur fyrstu er safn laga sem Conny átti þátt í að taka upp, á þeim þriðja eru nýjar endurgerðir og á fjórða disknum er tónleikaupptaka frá 1986 með Conny, Dieter Möbius og Arno Steffen. Þetta er vegleg og flott útgáfa sem hægt er að mæla með.
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira