Eyþóri kastað í ískaldan sjóinn og stóð sig eins og hetja Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 14. mars 2013 06:00 Eyþór Ingi þurfti að þola tveggja gráðu heitan sjó í einu atriðinu og voru þrír björgunarsveitamenn tilbúnir að grípa inní ef þess þyrfti. „
Ég hef aldrei séð neinn jafn þreyttan og Eyþór Inga á þriðjudagskvöldið, enda vorum við þá búin að vera að í yfir 20 tíma samfleytt og hann búinn að verja stórum hluta þess tíma í vatni,“ segir Guðmundur Þór Kárason, leikstjóri tónlistarmyndbands Eurovision-lagsins Ég á líf og einn eigandi framleiðslufyrirtækisins Purkur, sem annast gerð þess í samstarfi við Pipar/TBWA. Eins og fram hefur komið gerist myndbandið á hafi úti og ver Eyþór Ingi stórum hluta þess í vatninu sjálfu. „Við köstuðum honum út í 2ja gráðu heitan sjóinn þegar hitastigið úti var mínus fjórar gráður. Það voru þrír björgunarsveitamenn viðstaddir og tilbúnir að grípa inn í ef þess þyrfti. Þetta gekk þó allt lygilega vel,“ segir Guðmundur. Guðmundur Þór segir marga hafa lagt lóð á vogarskálarnar við gerð myndbandsins. „Það gáfu sig allir 200 prósent í þetta og metnaðurinn var svo mikill að jafnvel þegar ég var búinn að samþykkja tökuna vildu Eyþór og Hákon tökumaður stundum taka hana aftur til að ná henni alveg fullkominni,“ segir hann. „Mér líður eins og ég hafi ekki gert neitt. Ég stóð bara þarna í dúnúlpu og sagði fólki fyrir verkum,“ bætir hann við hlæjandi. Myndbandið er að sögn Guðmundar angurvært og gleðilegt í bland. „Það er svolítið dramatískt en ég lagði upp með að hafa það ekki of væmið. Svo var þetta auðvitað kolvæmið þegar upp var staðið,“ segir hann og hlær. Myndbandið verður frumsýnt í hádeginu á morgun á heimasíðu Vodafone.
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira