Lífið

Lesbíur eignast dóttur

MYNDIR / COVER MEDIA
Grínistinn Rosie O'Donnell ættleiddi stúlkubarn með eiginkonu sinni Michelle Rounds. Litla hnátan fæddist á laugardaginn var og mæðrum og barni heilsast vel.

"Við erum í skýjunum með að tilkynna um komu dóttur okkar Dakotu. Með ást og þökkum – AMEN," skrifaði Rosie á Instragram-síðu sína með mynd af litlu fjölskyldunni.

Hamingjusamar.
Dakota er fimmta barn Rosie. Hún á Parker, Chelsea, Blake og Vivienne með fyrrverandi eiginkonu sinni Kelli Carpenter.

Rosie og Michelle trúlofuðu sig í desember árið 2011 og giftu sig sex mánuðum seinna í kyrrþey.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.