Lífið

Alþingisbandið gæti slegið rækilega í gegn

HAM á Alþingi? Arnar Ómarsson, Sigruður Björn Blöndal, Sigurjón Kjartansson, Óttarr Proppe og Flosi Þorgeirsson eru allir í framboði.
HAM á Alþingi? Arnar Ómarsson, Sigruður Björn Blöndal, Sigurjón Kjartansson, Óttarr Proppe og Flosi Þorgeirsson eru allir í framboði.
Tónlistarmenn eru margir hverjir ansi pólitískir og hafa sterkar skoðanir á því hvað má betur fara í samfélaginu. Góð dæmi um þetta eru Bubbi Morthens og Hörður Torfason, auk þess sem Árni Johnsen hefur verið þingmaður og tónlistarmaður í fjölda ára. Úti í heimi eru Bob Dylan og John Lennon þekkt dæmi um tónlistarmenn sem hafa látið til sín taka á pólitíska sviðinu.

Nú styttist óðum í alþingiskosningar og sjaldan eða aldrei hafa jafnmargir tónlistarmenn verið í framboði. Flestir eru þeir á lista Bjartar framtíðar, sem býður fram í fyrsta sinn.

Auðveldlega væri hægt að setja saman öfluga hljómsveit úr þessum tónlistarmönnum og jafnvel tvær. Alþingisbandið yrði að mestu skipað söngvurum og gæti auðveldlega slegið í gegn. Allir meðlimir rokksveitarinnar Ham eru einnig í framboði fyrir Bjarta framtíð og gætu hljómsveitirnar tvær því mögulega skipst á að halda uppi stuðinu á Alþingi og brjóta í leiðinni upp hinar hefðbundnu og oft og tíðum þurru stjórnmálaumræður.

Alþingisbandið

Hera Björk

18. sæti Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi

Egill Ólafsson, Stuðmenn

2. sæti Lýðræðisvaktarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður

Mugison

16. sæti Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi

Gylfi Ægisson

Heiðurssæti Hægri grænna í Norðvesturkjördæmi

Heimir Eyvindarson

Á móti sól

3. sæti Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi

Björn Kristinsson, Borkó

21. sæti Bjartar framtíðar í Norðvesturkjördæmi

Einar Örn Benediktsson Ghostigital

21. sæti Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður

Guðmundur Steingrímsson, Skárren ekkert

1. sæti Bjartrar framtíðar í Suðvesturkjördæmi.

Umfjöllunina í Fréttablaðinu má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.