Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Ragnheiður Ríkharðsdóttir, flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, þeirrar skoðunar að það sé skýr vilji forystu flokksins að efna skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við ESB. Um kosningaloforð hafi verið að ræða og bera skyldi málið undir þjóðina á fyrri hluta kjörtímabilsins. Þetta voru viðbrögð hennar við þeirri skoðun Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra, að ekkert sé í hendi um það hvort málið verði lagt í dóm þjóðarinnar.

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, vísar til þess sem stendur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, landsfundarsamþykktar Sjálfstæðisflokksins og samþykktar flokksþings Framsóknarflokksins þegar hann er spurður um afstöðu til umræðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður.
„Í því felst að engin ákvörðun hefur verið tekin um þjóðaratkvæðagreiðslu; hvort hún fari fram eða hvenær hún fari fram. Það sem einstakir þingmenn eru að segja á þessari stundu um það, eru persónulegar skoðanir en ekki stjórnarstefnan eða stefna þeirra flokka sem þeir standa fyrir.“
Spurður um hvort hann sé þar að vísa í orð þingflokksformannsins, Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þá svarar Birgir því til að hann ætli sér ekki að munnhöggvast við einstaka félaga sína.
Um það hvort ekki hafi verið um skýrt kosningaloforð að ræða af hálfu Sjálfstæðisflokksins, að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin, óháð því sem stendur í stjórnarsáttmála stjórnarinnar, svarar Birgir. „Hvort er nýrra? Hvort er málamiðlun tveggja flokka? Það sem segir í stjórnarsáttmálanum er skýrt svo langt sem það nær, og í því felst ekkert umfram það sem felst í orðanna hljóðan.“