Segist loka heilli hæð vegna of mikillar sölu 14. febrúar 2013 06:00 Verslunin Atmo hefur verið starfrækt í tæpa þrjá mánuði og hefur salan farið gríðarlega vel af stað. „
Ef það eru ekki til vörur til að selja neyðist maður til að draga saman seglin," segir Ásta Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri verslunarinnar ATMO við Laugaveg, en efri hæð verslunarinnar stendur nú tóm, vegna of mikillar sölu að hennar sögn. „Það gengur ekki að láta stóra hæð í 3.000 fermetra húsi standa hálf tóma," segir Ásta. „Þess vegna erum við búin að færa allt tímabundið niður af efri hæðinni." Ásta segir forsvarsmenn ATMO ekki hafa gert ráð fyrir svo mikilli sölu strax í upphafi, en búðin hefur verið starfrækt í tæpa þrjá mánuði. „Fólk er greinilega mjög ánægt með íslenska hönnun og salan er búin að ganga mjög vel, en þetta hangir allt saman. Þetta er hringrás, hönnuður þarf að koma frá sér vöru, framleiða hana og svo skila henni til okkar. Ef eitthvað stoppar í þessari hringrás þá erum við alveg stopp, því við reiðum okkur eingöngu á íslenska hönnuði og íslenskar vörur," segir Ásta. Vandamálið að hennar mati er að íslenskir hönnuðir eigi oft í mjög miklum vandræðum með framleiðslu. Hún kallar þess vegna eftir meiri stuðningi frá hinu opinbera og telur einkennilegt að hönnuðir þurfi að borga fullan virðisaukaskatt þegar aðrar skapandi greinar borga minna. „Það er mjög erfitt að koma á fót nýjum vörumerkjum í núverandi umhverfi. Ef ríkið myndi styðja okkur betur gætum við verið samkeppnishæfari við erlendar vörur, en allir þessir skattar og innflutningsgjöld gera okkur erfitt fyrir," segir Ásta. Reksturinn á ATMO mun halda áfram í smækkaðri mynd. Starfsfólki hefur fækkað nokkuð en kjarninn af upprunalega starfsfólkinu er enn til staðar. Ásta segist heilt yfir mjög ánægð með verkefnið, enda hafi yfir 30.000 manns lagt leið sína í verslunina. „Við stefnum á að færa okkur aftur upp á efri hæðina, en þá myndi stuðningur frá hinu opinbera hjálpa mikið. Það þarf að gera mikið fyrir þessa grein hérna heima svo hún geti vaxið og dafnað líkt og í nágrannalöndum okkar," segir Ásta. Þá segist hún horfa björtum augum til framtíðar og sér fram á að fá inn nýjar vörur í mars eða apríl.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira