Innlent

Gjald á kvikmyndun í Þingvallaþjóðgarði

Náttúrufegurðin á Þingvöllum er eftirsótt sviðsmynd kvikmyndagerðarmanna sem brátt þurfa að greiða gjald fyrir að athafna sig í friðlandinu.
Fréttablaðið/Pjetur
Náttúrufegurðin á Þingvöllum er eftirsótt sviðsmynd kvikmyndagerðarmanna sem brátt þurfa að greiða gjald fyrir að athafna sig í friðlandinu. Fréttablaðið/Pjetur
„Þetta getur verið alveg gríðarlega umfangsmikið,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um vaxandi umsvif kvikmyndagerðarfólks í þjóðgarðinum. Nýju gjaldi er ætlað að fjármagna aukið eftirlit með þeirri starfsemi.

„Það er óheimilt að kvikmynda í garðinum án sérstaks leyfis og það hefur alltaf verið þannig,“ útskýrir Álfheiður. „Þetta er meðal annars vörn gegn því að menn fari að gera Þingvelli að sínu lógói eða taka þjóðgarðinn í auglýsingaskyni fyrir eitt eða annað. Þetta tíðkast alls staðar í heiminum.“

Að sögn Álfheiðar hefur fram til þessa verið lagt sérstakt tryggingargjald á kvikmyndargerðarfyrirtækin vegna hugsanlegs skaða sem þau geti valdið og um þetta séu gerðir samningar.

„Það er frægt að það var nánast kveikt í öllum gróðri í Almannagjá fyrir um tuttugu árum. Þá var verið að taka einhverja drekamynd með eldtungum,“ rifjar formaðurinn upp og minnir á óhapp sem varð við Silfru í nóvember í fyrra þegar málningarflygsur af búnaði kvikmyndatökumanna menguðu gjána.

Þingvallanefnd samþykkti í lok janúar að leggja á umrætt gjald ásamt því að innleiða gjald fyrir þvottaaðstöðu og sturtur á tjaldstæðum. Af mættum nefndarmönnum lýsti aðeins Ragnheiður Elín Árnadóttir úr Sjálfstæðisflokki sig andvíga gjaldtökunni. Vísaði Ragnheiður til þess að ekki væri búið að útfæra þá þjónustu sem rukka ætti fyrir. Nefndin fól þjóðgarðsverði að útbúa gjaldskrá en hún hefur ekki verið gefin út.

Álfheiður segir ljóst að gjaldið eigi að standa undir umsýslu, eftirliti og aðstoð við kvikmyndatökuliðin.

„Þetta er til þess að hlutirnir geti gengið smurt fyrir sig. Við viljum til að mynda ekki að einhverjir útlendir kvikmyndatökumenn séu að bægja ferðamönnum frá. Það er réttara að það sé starfsmaður þjóðgarðsins sem veki athygli á því hvað fer fram,“ segir Álfheiður og undirstrikar að ekki sé átt við myndatökur almennings. „Það er ekki verið að banna heimavideó af fjölskyldunni.“

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×