Lífið

Háskólatorginu breytt í flóamarkað

Metaðsókn í ár að sögn Ásu Kristínar Einarsdóttur, í félags-, lífs- og menningarnefnd Stúdentaráðs.
Metaðsókn í ár að sögn Ásu Kristínar Einarsdóttur, í félags-, lífs- og menningarnefnd Stúdentaráðs. Fréttablaðið/Valli
Flóamarkaður verður haldinn á Háskólatorgi á morgun. Þar munu nemendur Háskóla Íslands koma sér upp sölubásum og selja þar allt milli himins og jarðar. Þetta er í fimmta sinn sem slíkur flóamarkaður er haldinn á vegum Stúdentaráðs HÍ.

„Þetta hefur verið mjög vel sótt og í ár er metþátttaka. Það sóttu fimmtíu um bás en við erum bara með fjörutíu bása og því komast færri að en vilja. Flestir ætla að selja fatnað og barnaföt, en svo verða einhverjir með handunna vöru, málverk og ýmislegt annað," segir Ása Kristín Einarsdóttir, meðlimur í félags-, lífs- og menningarnefnd Stúdentaráðs. Sjálf hefur hún ekki tekið þátt í Háskólaportinu en kveðst hafa gert þar góð kaup.

„Ég keypti einu sinni eyrnalokka þar á mjög góðum prís. Þeir hafa verið heilmikið notaðir," segir hún og hlær.

Stúdentakjallarinn verður einnig opinn þennan dag og þar geta gestir keypt sér veitingar og hlýtt á tónlist. Háskólaportið fer fram á morgun á milli klukkan 13 og 17. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.