Aðsókn í Foreldrahús eykst stöðugt Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 7. nóvember 2013 10:00 "Þjónustan sem Foreldrahúsið veitir er fjölbreyttari nú en verið hefur,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri. fréttablaðið/Stefán „
Hópurinn sem leitar til okkar vegna kannabisneyslu ungmenna stækkar stöðugt og virðist sá vandi vera orðinn töluvert stór,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri hjá Vímulausri æsku - Foreldrahúsinu. Hún getur þess að í fyrra hafi verið tekin 1.180 viðtöl við foreldra og ungmenni í Foreldrahúsinu, sem er í Borgartúni 6, og af þeim hafi um 900 verið vegna vímuefnavanda unglinga. „Önnur viðtöl eru sálfræðiviðtöl en fjöldi þeirra er einnig vegna vímuefnavanda. Það sem af er þessu ári virðist fjöldi þeirra sem leitar til Foreldrahússins fara vaxandi eins og undanfarin ár. Þörfin fyrir aðstoð og úrræði eykst stöðugt.“ Að sögn Guðbjargar voru 97 foreldrar í fyrra í stuðningshópum fyrir foreldra barna sem eru í vímuefnaneyslu eða hafa verið það. „Þá var farið í gang með sérstakt sjálfstyrkingarnámskeið fyrir foreldra til að styrkja sjálfsmynd þeirra og efla vitund þeirra í foreldrahlutverkinu, sem og færni til að skapa og viðhalda heilbrigðum og nánum tengslum við börnin sín. Fullbókað hefur verið á þessi námskeið.“ Guðbjörg tekur það fram að þótt að mestu hafi verið unnið með vímuefnavanda unglinga áður fyrr sé þjónustan fjölbreyttari nú. Unnið sé með ýmiss konar önnur vandamál, t.d. einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda. Fyrirlestrar hafa verið víðsvegar um landið í samstarfi við foreldrafélög, skólayfirvöld og sveitarfélög. „Við höfum auk þess haldið sjálfsstyrkingarnámskeið gegnum verkefnið Starfskraft sem er fyrir ungmenni sem eru hvorki í námi né vinnu og einnig fyrir Kvennasmiðjuna. Námskeið hafa jafnframt verið haldin í samstarfi við Ljósið fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Það er því mjög stór hópur sem nýtur þjónustu okkar á einn eða annan hátt.“ Í fyrra sóttu nær fimm hundruð börn og unglingar sjálfsstyrkingarnámskeið á vegum Foreldrahúss í Reykjavík og Hafnarfirði. Samtímis því sem eftirspurn eftir þjónustu eykst hefur reynst erfiðara að afla fjár til starfseminnar, að sögn Guðbjargar. „Það hefur þrengt að okkur eins og mörgum félagasamtökum. Nægilegt fé er því ekki tryggt og fjáröflun er stöðugt vandamál. Þó hefur gengið að halda úti grunnstarfsemi hingað til eins og áður. Fé sem við fáum frá ríkinu og Reykjavíkurborg til starfseminnar hefur verið skorið niður. Við höfum því þurft að reiða okkur á velvilja fyrirtækja og einstaklinga.“
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Sjá meira