Innlent

Sverðnykra bættist við flóru landsins

Ný háplöntutegund, sverðnykra, bættist við flóru landsins síðastliðið sumar þegar starfsmenn Náttúrufræðistofu Kópavogs voru við rannsóknir í Berufjarðarvatni nærri Bjarkalundi í Reykhólahreppi. Staðfesting á tegundagreiningunni fékkst nú á dögunum, segir í frétt frá Náttúrufræðistofnun.

Sverðnykran ber fræðiheitið Potamogeton compressus og tilheyrir hópi rúmlega 40 vatnaplantna sem lifa hér á landi, en alls eru þekktar um 490 háplöntutegundir í landinu. Sverðnykran vex á kafi í vatni og líkist helst grasi. Hún er hávaxin, verður allt að 2 metrar á hæð, og ber mjó, aflöng blöð sem eru um 0,5 sentimetra breið og allt að 20 sentimetrar á lengd.

Sverðnykran í Berufjarðarvatni óx í þéttum breiðum á um 1,7 metra dýpi, en mesta dýpi vatnsins mældist 2 metrar. Sverðnykran er evrópsk tegund og því markar þessi fundur hennar hér á landi ný vesturmörk á útbreiðslu tegundarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×