Draga þarf lærdóm af Hellisheiðarvirkjun Karen Kjartansdóttir skrifar 12. júní 2013 12:17 Sameiginlegur fundur þriggja nefnda Alþingis var haldin í morgun vegna virkjunarinnar. Valli
Umhverfisáhrif vegna Hellisheiðarvirkjunar voru vanmetin en orkan ofmetin. Draga verður lærdóm af þessari reynslu við uppbyggingju jarðvarmavirkjana í framtíðinni. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli gesta sem á sameiginlegum fundi atvinnu-, samgöngu-, og umhverfisnefndar Alþingis í morgun. Vinnslusvæði Hellisheiðarvirkjunar stendur ekki undir fullum rekstri hennar og þarf að leita orku annar staðar á heiðinni til að tryggja full afköst og tekjur. Um þetta hefur verið fjallað í fréttum undanfarna daga. í viðtali við Fréttablaðið í dag heldur Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, því fram að umræðunni sé ætlað að seinka Hverahlíðavirkjun og sé hluti af öfugsnúinni umhverfisumræðu í baráttu gegn fleiri álverum. Vegna þessarar stöðu var boðað til sameiginlegs fundar þriggja nefnda Alþingis í morgun að ósk þingmanna Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Á fundinn voru einnig boðaðir gestir frá fjölda stofnana og fyrirtækja sem koma að nýtingu og rannsóknum á jarðvarma. „Það er nú nokkuð ljóst að það var farið alltof geyst farið og alltof stór áfangi byggður í einu. Nánast var siglt í blindni út í óvissuna," segir Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, sem gagnrýnt hefur framkvæmdina. Á fundinum heyrðust efasemdir um að hugtakið sjálfbærni ætti við jarðvarmavirkjanir. Sigmundur er einn þeirra sem deildi slíkri skoðun. „Ég hef haft efasemdir um hugtakið sjálfbærni varðandi þessar raforkuvinnslu með jarðhitavirkjunum. Slík vinnsla á miklu meira skylt við námuvinnslu því það eyðist sem af er tekið. Þetta er ekki eins og vatnsafl en hægt er að líta það sem eilífa hringrás," segir Sigmundur en nefnir þó að vissar takmarkanir séu fólgnar í miðlunarlónum sem fyllast á einni eða tveimur öldum.En hvaða áhrif hefur þetta á uppbyggingu annarra jarðvarmavirkjanna svo sem á Reykjanesi og hvaða lærdóm þarf að draga af þessari framkvæmd?„Lærdómurinn er sá að í fyrsta lagi förum við alltof bratt í framkvæmdir miðað við fyrirliggjandi gögn, til dæmis um orkugetuna og mögulega orkuvinnslu á viðkomandi svæðum. Náttúrufræðistofnun hefur varað við því að orkan á Reykjanesi sé ofmetin og að verndargildi svæðisins sé verulega vanmetið. Við ættum að fara mjög varlega í því að halda áfram að nýta orkuna á Reykjanesi," segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira