Innlent

Fangar á Litla hrauni í eiturlyfjavímu

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Ófremdarástand hefur skapast á Litla hrauni síðustu daga en mikið af flogaveikislyfinu Rivotril og Suxinutin virðist vera þar í umferð.

Hópur fanga, sem situr inni fyrir alvarlega refsiglæpi, hefur misnotað lyfin síðustu daga og samkvæmt heimildum fréttastofu verið í stjórnlausri vímu.

Hegðun þeirra mun meðal annars vera rakin til áfalls sem þeir urðu fyrir vegna andláts fangans Steinars Aubertssonar en hann lést úr of stórum skammti eiturlyfja á laugardagsmorgun.

Fíkniefnaneysla inni á Litla hrauni er vandamál. Færst hefur í aukana að lyfseðilsskyld lyf séu notuð af föngum fyrir vímu en lyfin berast fyrst og fremst inn með aðstandendum og vinum.

Fangi getur fengið heimsóknir í fangelsi, eigi sjaldnar en vikulega allt eftir aðstæðum í fangelsinu hverju sinni.

Fangaverðir hafa litlar heimildir þegar kemur að fíkniefnaleit á heimsóknargestum fangelsa nema að rökstuddur grunur sé um refsiverða háttsemi.

Í lögum um fullnustu refsinga segir:

„Heimsóknir til fanga skulu almennt fara fram án eftirlits. Forstöðumaður fangelsis getur ákveðið að heimsókn skuli fara fram undir eftirliti ef nauðsynlegt þykir til að viðhalda góðri reglu og öryggi í fangelsi eða til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað. Slík ákvörðun skal bókuð og rökstudd.“

Með rökstuddum grun er átt við merkingar fíkniefnahunda eða aðrar sterkar vísbendingar. Slíkt er þó í þessu tilfelli afar flókið þar sem lyfseðilsskyld lyf eru lyktarlaus og hundarnir nema þau því ekki.

Algengasta smygleið lyfjanna er í gegnum endaþarm eða leggöng en dæmi er um að gestir hafi notað bleyju ungabarns til þess að smygla inn lyfi.

Páll winkel, fangelsismálastjóri vildi ekki tjá sig um neyslu fanga inni á Litla Hrauni að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×