Innlent

Kannabisrækt stöðvuð í Reykjanesbæ

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Valgarður
Kannabisræktun var stöðvuð í fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ í gær. Lögreglan á Suðurnesjum fór í húsleit að fengnum dómsúrskurði. Húsráðandi, karlmaður á fertugsaldri, tók á móti lögreglumönnum og vísaði þeim á herbergi í íbúðinni þar sem ræktun var í fullum gangi.

Í herberginu hafði verið komið fyrir gróðurhúsatjaldi og inni í því talsvert af kannabisplöntum, bæði fullvöxnum og minni. Í skáp í sama herbergi voru einnig nokkrar plöntur í uppvexti.

Maðurinn neitaði sölu fíkniefna og kvaðst hafa ræktað plöntunar til neyslu fyrir sjálfan sig og vini sína.

Þrír óku á og stungu af

Þrír ökumenn óku á eða utan í bifreiðar í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni og stungu síðan af. Í tveimur tilvikum var ekið á kyrrstæðar bifreiðar og sá eigandi annarrar þeirra þegar bakkað var á bíl hans. Það hafði enginn áhrif á gerandann, sem ók í burtu.

Í þriðja tilfellinu ók ökumaður á röngum vegarhelmingi og rakst bifreið hans utan í aðra sem kom á móti. Hann stöðvaði bíl sinn sem snöggvast, en þegar ökumaður hinnar bifreiðarinnar ætlaði að hafa tal af honum lét hann sig hverfa af vettvangi.

Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók sviptur ökuréttindum, tveimur sem töluðu í síma án þess að nota handfrjálsan búnað og sex sem ekki voru með öryggisbelti spennt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×