Sport

Gylfi toppar sig enn á ný

Hjörvar Hafliðason skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Tottenham, skoraði í gær eitt fallegasta mark sem skorað hefur verið í Evrópu á þessari leiktíð. Þegar hann þrýsti utanfótarslummu fyrir utan vítateig efst í markhorn Hull City. Leikurinn sem var liður í 16 liða úrslitum enska deildabikarsins endaði með sigri Tottenham 8-7  eftir vítaspyrnukeppni.

Staðan eftir 90 mínútur var 1-1 en eftir framlengingu 2-2. Hetja Lundúnabúa var Brad Friedel markvörður eða skrímslið frá Ohio eins og hann er stundum nefndur.

Þetta er að öllum líkindum glæsilegasta mark Gylfa í atvinnuboltanum. Gylfi sem er 24 ára hefur nú verið atvinnumaður í rúm átta ár en hann var keyptur til Reading frá Breiðablik árið 2005.

Í myndskeiðinu með fréttinni er einnig að finna mistök Brads Friedel markvarðar Tottenham og sömuleiðis vítaspyrnu Gylfa í vítaspyrnukeppninni. Gylfi er örugg skytta en fær þó væntanlega ekki að taka 11 metra spyrnurnar fyrir Tottenham á þessari leiktíð, þar sem ein öflugasta skytta ensku úrvaldeildarinnar, Roberto Soldado, sér um þau mál á White Hart Lane.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×