Kólumbía á HM eftir magnaða endurkomu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2013 23:09 Falcao fagnar því að Kólumbíumenn eru komnir á HM. Mynd/AFP
Kólumbía var í kvöld þrettánda þjóðin til þess að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu á næsta ári þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Síle á heimavelli í Suður-Ameríkuriðlinum í undankeppni HM 2014. Það stig sem og tap Úrúgvæ í Ekvador þýðir að Kólumbíumenn eru komnir inn á HM alveg eins og Argentína. Þetta leit þó ekki vel út fyrir Kólumbíu því Síle komst í 3-0 á fyrsta hálftíma leiksins en Síle þurfti nauðsynlega á stigum að halda í baráttunni um eitt að fjórum efstu sætum riðilsins. Alexis Sanchez, leikmaður Barcelona, skoraði tvö mörk með sjö mínútna millibili eftir að Arturo Vidal kom Sílemönnum á bragðið með marki úr vítaspyrnu á 19. mínútu. Síle-menn voru með sigurinn innan seilingar. Þannig var staðan þar til að Teofilo Gutiérrez minnkaði muninn á 69. mínútu. Falcao tryggði Kólumbíu síðan jafntefli og sæti á HM með því að skora úr tveimur vítaspyrnum á 75. og 84. mínútu leiksins. Jefferson Montero tryggði Ekvador 1-0 heimasigur á Úrúgvæ en Úrúgvæmenn sitja því væntanlega eftir í fimmta sætinu og verða að fara í umspilsleiki á móti Jórdaníu.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira