Tíu liða áætlun um leiðréttingu skulda heimila Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. júní 2013 20:15 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætsiráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Mynd/Stefán
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vill að Alþingi feli ríkisstjórninni að framkvæma aðgerðaáætlun til að leiðrétta skuldir heimila. Þetta sagði Sigmundur í fyrstu stefnuræðu sinni sem forsætisráðherra. Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni fyrr í kvöld að farin úr sú óhefðbundna leið að biðja Alþingi að fela ríkisstjórninni að hefja formlega vinnu við úrlausn á skuldavanda heimilanna. "Í því skyni mun ég leggja fram þingsályktunartillögu sem inniheldur aðgerðaáætlun í tíu liðum sem varða nauðsynlegar aðgerðir vegna stöðu heimilanna," sagði Sigmundur. "Í aðgerðaáætluninni verður fjallað um undirbúning almennrar skuldaleiðréttingar, höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána, möguleikann á stofnun sérstaks leiðréttingarsjóðs ef önnur fjármögnun gengur of hægt og setningu svokallaðra lyklalaga." Þá sagði Sigmundur að sérfræðihópur um afnám verðtryggingar af neytendalánum tæki til starfa og einnig verkefnisstjórn um endurskipulagningu húsnæðislánamarkaðarins. Lagt væri til að lögfesta flýtimeðferð dómsmála sem tengjast skuldvanda heimilanna. Innanríkisráðherra hafi þegar lagt fram frumvarp um þetta. "Kannaðir verða möguleikar á að sekta fjármálafyrirtæki vegna umtalsverðra tafa á endurútreikningi lána," sagði forsætisráðherra sem kvað einnig miðað að því að afnema stimpilgjöld vegna húsnæðiskaupa einstaklinga, til eigin nota, og að fella niður eða aðstoða við fjármögnun kostnaðar vegna gjaldþrotaskipta Þá eigi að leggja fram frumvarp umskýrar heimildir fyrir Hagstofu Íslands til að afla upplýsinga frá fjármálafyrirtækjum um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja. Tillögur sérfræðingahópa og frumvörp samkvæmt aðgerðaáætluninni verði lögð fram þegar á haustþingi. "Allar þessar aðgerðir eru nauðsynlegar og skynsamlegar, og það er einlæg von mín að þingmenn jafnt stjórnar og stjórnarandstöðu muni styðja tillöguna af heilum hug og sýni þjóðinni þannig í verki að þegar kemur að heill heimilanna í landinu sé fullur samhugur á Alþingi Íslendinga," sagði Sigmundur sem ítrekaði að þótt mikil áhersla verði lögð á skuldamálin séu úrlausnarefni nýrrar ríkisstjórnar mörg og viðamikil. "Eins og ég hef þegar nefnt eru horfurnar í rekstri ríkissjóðs miklum mun verri en haldið hefur verið fram. Ríkisstjórnin mun á næstu dögum kynna upplýsingar um raunverulega stöðu ríkisfjármála og horfur eins og þær líta út að óbreyttu. Það er ekki fögur mynd og mjög ólík þeim spám sem stjórnvöld hafa birt á undanförnum árum. En sem betur fer er hægt að snúa þessari þróun til betri vegar með því að innleiða skynsemisstefnu í rekstri ríkisins og nýta þau tækifæri sem við stöndum frammi fyrir," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira