Innlent

Tíu liða áætlun um leiðréttingu skulda heimila

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætsiráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætsiráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Mynd/Stefán

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vill að Alþingi feli ríkisstjórninni að framkvæma aðgerðaáætlun til að leiðrétta skuldir heimila. Þetta sagði Sigmundur í fyrstu stefnuræðu sinni sem forsætisráðherra.

Forsætisráðherra sagði í ræðu sinni fyrr í kvöld að farin úr sú óhefðbundna leið að biðja Alþingi að fela ríkisstjórninni að hefja formlega vinnu við úrlausn á skuldavanda heimilanna.

"Í því skyni mun ég leggja fram þingsályktunartillögu sem inniheldur aðgerðaáætlun í tíu liðum sem varða nauðsynlegar aðgerðir vegna stöðu heimilanna," sagði Sigmundur. "Í aðgerðaáætluninni verður fjallað um undirbúning almennrar skuldaleiðréttingar, höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána, möguleikann á stofnun sérstaks leiðréttingarsjóðs ef önnur fjármögnun gengur of hægt og setningu svokallaðra lyklalaga."

Þá sagði Sigmundur að sérfræðihópur um afnám verðtryggingar af neytendalánum tæki til starfa og einnig verkefnisstjórn um endurskipulagningu húsnæðislánamarkaðarins. Lagt væri til að lögfesta flýtimeðferð dómsmála sem tengjast skuldvanda heimilanna. Innanríkisráðherra hafi þegar lagt fram frumvarp um þetta.

"Kannaðir verða möguleikar á að sekta fjármálafyrirtæki vegna umtalsverðra tafa á endurútreikningi lána," sagði forsætisráðherra sem kvað einnig miðað að því að afnema stimpilgjöld vegna húsnæðiskaupa einstaklinga, til eigin nota, og að fella niður eða aðstoða við fjármögnun kostnaðar vegna gjaldþrotaskipta

Þá eigi að leggja fram frumvarp umskýrar heimildir fyrir Hagstofu Íslands til að afla upplýsinga frá fjármálafyrirtækjum um fjárhagsstöðu heimila og fyrirtækja. Tillögur sérfræðingahópa og frumvörp samkvæmt aðgerðaáætluninni verði lögð fram þegar á haustþingi.

"Allar þessar aðgerðir eru nauðsynlegar og skynsamlegar, og það er einlæg von mín að þingmenn jafnt stjórnar og stjórnarandstöðu muni styðja tillöguna af heilum hug og sýni þjóðinni þannig í verki að þegar kemur að heill heimilanna í landinu sé fullur samhugur á Alþingi Íslendinga," sagði Sigmundur sem ítrekaði að þótt mikil áhersla verði lögð á skuldamálin séu úrlausnarefni nýrrar ríkisstjórnar mörg og viðamikil.

"Eins og ég hef þegar nefnt eru horfurnar í rekstri ríkissjóðs miklum mun verri en haldið hefur verið fram. Ríkisstjórnin mun á næstu dögum kynna upplýsingar um raunverulega stöðu ríkisfjármála og horfur eins og þær líta út að óbreyttu. Það er ekki fögur mynd og mjög ólík þeim spám sem stjórnvöld hafa birt á undanförnum árum. En sem betur fer er hægt að snúa þessari þróun til betri vegar með því að innleiða skynsemisstefnu í rekstri ríkisins og nýta þau tækifæri sem við stöndum frammi fyrir," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×