"Verið hress - ekkert stress - bless" Boði Logason skrifar 10. júní 2013 21:18 Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar Framtíðar, á Alþingi í kvöld. Mynd/Stefán „
Ég borða lambakjöt, ég á margar lopapeysur, ég er BA í íslensku, ég hef lesið allar Íslendingasögurnar og ég elska mitt land,“ sagði Guðmundur Steingrímsson á Alþingi í kvöld. Í ræðu sinni sagði Guðmundur að Björt Framtíð, og hugsanlega fleiri, ætlaði að leggja fram þingsályktunartillögu á sumarþinginu þess efnis að farið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu innan eins árs um það hvort að halda eigi viðræðunum við Evrópusambandið áfram. „Ég vænti þess að það sé víðtækur stuðningur til þessa máls.“ Guðmundur sagði að mikil tímamót væru núna í pólitíkinni og ný kynslóð væri tekin við stjórnartaumunum, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. „Í þessu felast mikil tækifæri,“ sagði hann og benti á að síðasta kjörtímabili hafi verið mjög óvenjulegt og erfitt. Þá kom hann inn á það að mikilvægt væri að þingmenn stunduðu vönduð vinnubrögð á Alþingi. Björt framtíð ætlaði að stunda uppbyggilega umræðu. „Við ætlum ekki að hindra það að mál fari í atkvæðagreiðslu, við ætlum að tryggja að mál fái vandaða meðferð hér í þinginu.“ Hann kom einnig inn á skuldamál heimilanna og sagði að þingmenn Bjartrar framtíðar ætluðu að spyrja gagnrýnna spurninga í því sambandi. Og hann vitnaði í Hemma Gunn: „Ég ætla að leyfa mér að enda þessa ræðu mína á frægum orðum Hermanns Gunnarssonar; Verið hress - ekkert stress - bless," sagði Guðmundur í kvöld.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira