Óvissa í skipulagsmálum stendur atvinnuuppbyggingu fyrir þrifum Heimir Már Pétursson skrifar 12. júní 2013 13:10 Fiskeldi í Súðavík Mynd/ Vilhelm
Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir ótækt að skipulagsvaldi sveitarfélaga ljúki nánast í fjöruborðinu, en úrskurðarnefnd umhverfismála hefur úrskurðað að fyrirhugað fiskeldi í Ísafjarðardjúpi skuli fara í umhverfismat. Halldór segir algerlega óljóst hvar skipulagsvaldið liggi hvað þetta varðar. Fyrirhuguð sjö þúsund tonna sjókvíseldi í Ísafjarðardjúpi, þar á meðal á laxi, skal háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar umhverfismála. Landssamband veiðifélaga telur að um áfangasigur sé að ræða. Á síðasta ári ákvað Skipulagsstofnun að fyrirhugað fiskeldi í Ísafjarðardjúpi skyldi ekki háð mati á umhverfisáhrifum, en Landssambandið kærði þá ákvörðun. Í tilkynningu frá Landssambandi veiðifélaga segir að of snemmt sé að fagna fullnaðarsigri í málinu því umhverfismatið hafi enn ekki farið fram og óvíst um niðurstöðu þess. Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir skipulagsvald sveitarfélaganna nánast enda niður í fjöru. „Ég hef talið lengi og sveitarstjórnarfólk á Íslandi almennt talað fyrir því mjög lengi og þá sérstaklega á Vestfjörðum þar sem erm mikið um flesta firði landsins og víkur." Það sé óhæft að skipulagsvald sveitarfélaganna nái ekki lengra en 150 metra út fyrir stórstreymisfjöruborð. „Við viljum geta skipulagt firði og víkur að minnsta kosti því að það er mikilvægt að geta ákveðið hvaða svæði eiga að vera undir eldi, námavinnslu í hafi og svo framvegis." Halldór segir ekki alveg ljóst hvar skipulagsvald úti á fjörðum og víkum liggi í dag. „Það er verið að sækja um námaleyfi um að taka steypumöl á hafsbotni til eins ráðuneytis en verið að sækja um eldisleyfi til annars." Þá séu ákveðn svæði skilgreind sem hafnarsvæði og þar liggi skipulagsvaldið í enn einu ráðuneytinu. Nú vilji margir fara út í fiskeldi á fjörðum og víkum og það sé fagnaðarefni. „Nú væri heldur betur gott að það væri búið að skipuleggja þau svæði og ef það hefði verið hlustað á sveitarfélögin þaá væri löngu búið að því."
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Erlent Fleiri fréttir Vara við slysahættu vegna kaldavatnsleysis Vilja herða reglur um frágang rafhlaupahjóla í Reykjavík Segir valkyrjur rangnefni og vill kalla þær skjaldmeyjar Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Sjá meira