Innlent

Skemmtibátur í bobba

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Björgunarbáturinn Þórður Kristjánsson í Reykjavík var kallaður út um fjögurleytið í dag til aðstoðar skemmtibáti í vandræðum.

Sá var staddur norðan Viðeyjar og gat ekki sett í gír til að halda siglingu sinni áfram.

Sjö manns voru um borð en engin hætta var á ferðum enda gott veður.

Þórður setti bátinn í tog og setti stefnuna í Reykjavíkurhöfn þar sem þeir komu upp úr klukkan hálf sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×