Innlent

Vantrauststillaga Þórs tekin fyrir á morgun

Vantrauststillaga Þórs Saari verður tekin fyrir á Alþingi á morgun og þá kemur í ljós hvort ríkisstjórnin haldi velli.

Miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvernig atkvæði muni falla en Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins sagði í Silfri Egils fyrr í dag að framsóknarmenn væru ekki búnir að ákveða hvernig þeir ætli að greiða atkvæði.

Svo gæti farið að þingflokkurinn myndi sitja hjá við afgreiðslu tillögunnar enda væri stutt eftir af þinginu.

Illugi Gunnarsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sagði sjálfstæðismenn ætla að greiða atkvæði með vantrausti á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×