Innlent

Kveiktu í Renault - lögreglan leitar vitna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þessi mynd var tekin af bílnum í gærdag. Í nótt var svo eldur borinn að honum.
Þessi mynd var tekin af bílnum í gærdag. Í nótt var svo eldur borinn að honum. Mynd/ Gísli Berg
Grunur leikur á að kveikt hafi verið í ljósgrænum Renault Megane Scenic sem stóð við Húsaskóla i Dalhúsum í gær.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna vegna rannsóknar á brunanum, en tilkynnt var um eldinn klukkan. 1.47 í nótt. Vegfarandi slökkti eldinn.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×