Lífið

Þetta kallar maður kjól!

MYNDIR / COVER MEDIA
Ofurfyrirsætan Miranda Kerr stal aldeilis senunni í kokteilpartíi á vegum flugfélagsins Qantas í Beverly Hills í vikunni.

Miranda, sem kosin var ein best klædda kona síðasta árs, klæddist guðdómlegum kjól frá Oscar de la Renta sem fór henni stórkostlega. Við kjólinn var hún í hælum frá Christian Louboutin og bar skartgripi frá Bvlgari.

Fögur er hún.
Miranda brosti blítt þó mikið sé slúðrað um að hjónaband hennar og leikarans Orlando Bloom standi á brauðfótunum.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.