Hættu að finna upp nýjar afsakanir 11. janúar 2013 16:30 „
Ég fæ oft spurningar frá fólki hvernig það ætti að koma sér af stað. Hvernig get ég komið mér í form? Hvað þarf ég að gera til þess að léttast?" segir Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur og einkaþjálfari sem heldur úti heimasíðunni Meistarathjalfun.com beðinn um góð ráð til að komast upp úr sófanum og í ræktina.Guðmundur sendi okkur eftirfarandi hugleiðingu um markmiðasetningu þegar kemur að hreyfingu: Fyrsta skrefið er alltaf hjá þér. Þú verður að ákveða að nú ætlar þú að koma þér af stað. Þú ætlar að koma þér í form og þú ætlar að taka til í mataræðinu. Sem þjálfari þá hef ég oft notast við tilvitnun úr Star Wars sem litli vinur okkar allra segir „Do or Do not - there is no try." Þetta er nákvæmlega málið en það er annað sem mig langar að tala um. Ætti ég, eða ætla ég? Hversu oft hefur þú setið í sófanum, að horfa á góða mynd með kók í annarri og skál af snakki hjá þér og þú hugsar „ég ætti nú að fara að hugsa betur um mataræðið". Svo færðu þér snakk, sérð einhvern úti að hlaupa og þú hugsar „ég ætti að skella mér út að hlaupa um helgina, reyna að koma mér í form" svo fer helgin í það að liggja og horfa á enska boltann. Hættu að hugsa um hlutina „ég ætti kannski að…" og farðu að farðu að hugsa „ég ætla að ..". Taktu skrefið, farðu á eftir því sem þú þarft að gera.Það er alveg klárt mál að þú hefur heyrt það ótal sinnum að til þess að grenna sig þá er það 75 – 80% mataræðið sem þarf að vera í lagi. Hreyfingin skiptir miklu máli líka til að vera í góðu standi en fyrsta skrefið hjá þér ætti að vera að laga mataræðið. Þrátt fyrir að þú vitir þetta, þá kemur það fyrir á næstum hverjum einasta degi að einhver segir við mig „ég veit að ætti að vera að borða svona mat og ég ætti að gera svona æfingar en finn ekki hvatninguna eða upplýsingar." Netið í dag er fullt af upplýsingum um það sem þú leitar að, og hvatningin ætti ekki að vera vandamál. Það ætti að nægja að hugsa um fjölskylduna, að geta leikið við krakkana sína, geta farið í bolta með vinum, geta gengið á fjöll. Hvatning og upplýsingar eru út um allt! Þú þarft að ákveða að þú ætlir að breyta um lífstíl. Ég get sýnt þér leiðina en þú tekur skrefin.Ef þú vilt líta vel út og hugsa um heilsuna þá þarf mataræðið að vera í lagi. „Ég ætti að (borða betur/borða minna/borða hreinna) er gagnslaus hugsun sem mun ekki hjálpa þér neitt…. HÆTTU AÐ SEGJA ætti - ekki á morgun, ekki í kvöld heldur NÚNA. Tækifærið þitt er núna og ég ætla að gefa þér nokkra punkta.- Byrjaðu á því að skrá niður mat sem þú ert veik/ur fyrir. Maturinn sem þú ert sjúk/ur í. Þetta er maturinn sem þú veist að ef þú byrjar á því að fá þér þá hættir þú ekki fyrr en það er búið.Þetta er fæðan sem þú ætlar að útiloka Ef þú veist hvaða fæða það er sem fer svona illa í þig, settu þá regluna að þessi matur sem þú settir á listann er „forboðni ávöxturinn" þetta er maturinn sem verður ekki keyptur.- Þetta er ekki spurning um viljastyrk. Þetta er einfaldlega bara það sem þú ert að gera NÚNA- Ef þig langar til þess að fara að borða hollan og góðan mat og þú veist hvaða matur það er sem fer illa með þig, þá verður þú að gera þennan lista sem segir til um hvað þú mátt borða og hvað er bannað. Ef þú ert eins og næstum allir aðrir, átt erfitt með að hemja þig þegar kemur að óhollum mat þá er bara „einn biti, eitt súkkulaði" reglan ekki í boði!- Ef þú ert búin/n að gera listann þá er komið að því að hreinsa til, farðu í skápana þína, ísskáp, frysti, kex skúffuna, hreinsaðu út allt það sem er bannað á listanum þínum.Ég sé alveg fyrir mér það sem þú ert að hugsa núna „en ég er búin/n að borga fyrir þetta, það er alveg eins gott að ég klári þetta bara" . Ef þér er alvara um að hreinsa til þá er þetta bara fórnarkostnaður, gefðu nágrönnunum þetta, gefðu þetta í Hjálparstofnun kirkjunnar - komdu þessu bara frá þér. „En ég hef bara ekki efni á því að borða hollt, það er rándýrt." Er það í alvöru málið? Ertu búin/n að reikna út hvað þú eyðir miklu í gos, snakk, nammi, pylsur og annað sjoppufæði í viku hverri? Maður þarf aðeins að hugsa fram í tímann og lesa sér til og þá sérðu að það er ekkert of dýrt að borða hollt.Engar afsakanir Ekki reyna að finna endalaust upp nýjar afsakanir fyrir því að komast ekki í ræktina. Ég hef heyrt þær allar og þær virka bara ekki. Eins og staðan er í dag þá eru líkamsræktarstöðvar opnar langt fram eftir kvöldi, þær bjóða flestar upp á barnagæslu, þær bjóða upp á að fá aðstoð í salnum með þjálfara, þær bjóða upp á námskeið og opna tíma. Ekki nóg með það heldur býður okkar fallega land upp á frábæra náttúru, frábært loftslag og besta vatn í heimi til að taka með sér í göngutúr, á skokkið eða út að hjóla.Hver sem segir að það sé ekki hægt að finna sér tíma til að æfa er hreinlega í bullinu. Æfingar í dag þurfa ekki að taka meira en 20 – 40 mínútur. Þú gætir þurft að fara á æfingu snemma um morguninn, í hádeginu, seinni partinn eða hreinlega þegar krakkarnir eru sofnaðir. Hverju jafngildir ein æfing? Til dæmis einum sjónvarpsþætti! Er það mikil fórn? Meira að segja hérna á Íslandi þarftu að sætta þig við auglýsingar inn í miðjum þætti eða kvikmynd. Nýttu þér það! Í hverju auglýsingarhléi geturðu til dæmis tekið 5 armbeygjur, 10 hnébeygjur og 10 kviðæfingar í staðinn fyrir að skipta um rás og leita að nýju efni. Það er alltaf tími til að æfa. Núna þegar þú veist að þú HEFUR tíma til að æfa þá þarf að skipuleggja sig því þú vilt ekki byrja of geyst og gefast upp. Þú vilt gera þetta að lífstíl, þú vilt sjá árangur en hann kemur ekki á einni viku.Það þarf þrautsegju og vilja til að halda út Byrjaðu rólega – byrjaðu á því að fara út að ganga í 10 mínútur á hverjum degi, gerðu 5 armbeygjur og hnébeygjur – fyrsta skrefið er það erfiðasta. Þegar þú ert komin/n af stað þá bætir þú í.- Búðu til stundaskrá. Hvenær hefur þú tíma til að fara á æfingu? Stundum kemstu að morgni til og stundum að kvöldi. Gerðu stundaskrána og farðu eftir henni rétt eins og þú þarft að mæta á fund einn daginn og næsta dag þarftu að halda fyrirlestur. Þú skrópar ekki í vinnuna, af hverju ættirðu að skrópa á æfingu?Breyttu hugsunarhættinum Þú veist það að þú átt eftir að fá harðsperrur þegar æfingarnar verða erfiðari, ekki hugsa um þær sem slæman hlut, líttu á þetta þannig að þú veist að þú varst að taka á því, þú ert að gera eitthvað gott fyrir sjálfa/n þig. Hugsaðu um hvað æfingarnar gera gott fyrir þig og hvað það getur verið slæmt fyrir þig að sleppa æfingu. Hvernig getur það verið slæmt fyrir mig að sleppa æfingu?Sjá meira á heimasíðu Guðmundar hér.
Mest lesið Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Lífið „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Lífið Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Lífið Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Lífið „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Lífið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Lífið Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Lífið Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Lífið samstarf Fleiri fréttir Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið Sjá meira