Lífið

Flaggar trúlofunarhringnum á setti

MYNDIR / COVER MEDIA
Trúlofunarhringur Oliviu Wilde er sko ekkert slor en hún játaðist grínistanum Jason Sudeikis stuttu eftir jól. Olivia var ófeimin að sýna hringinn á setti nýjustu myndar sinnar, The Third Person.

"Þau eru svo spennt. Og mjög, mjög hamingjusöm," segir vinur parsins.

Þarna er hringurinn góði.
Olivia og Jason byrjuðu að deita í desember árið 2011, stuttu eftir að Olivia skildi við eiginmann sinn til átta ára, heimildargerðarmanninn Tao Ruspoli. Jason var kvæntur Kay Cannon frá 2004 til 2010.

Krúttlegt par.
Jason og Olivia byrjuðu að búa saman um mitt síðasta ár og skín ástin af þeim hvert sem þau fara.

Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.


MYNDIR / COVER MEDIA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.