Játaði kynferðisbrot gegn börnum í MSN-spjalli Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. janúar 2013 10:16
Mikil fjölmiðlaumfjöllun að undanförnu um barnaníð hefur lítil eða engin áhrif á þá sem eru með barnagirnd. Karlmaður á sjötugsaldri var gripinn þegar hann taldi sig vera að fara að hitta 12 ára gamla stúlku aðeins örfáum dögum eftir að umfjöllun fjölmiðla um barnaníðinga hafði komist í hámæli. Maðurinn, sem er á sjötugsaldri, hafði verið í samskiptum við "stúlkuna" á netinu en það sem hann vissi ekki var að stúlkan var í reynd Sölvi Tryggvason, sjónvarpsmaður, en þetta kemur fram í nýjasta þættinum af Málinu á Skjáeinum. Undir þeim formerkjum að hann væri 12 ára gömul stúlka komst Sölvi í kynni við manninn í gegnum vefsíðuna Einkamál.is . Í kjölfarið hófust svo samskipti þeirra með spjallforritinu MSN-Messenger. Maðurinn sóttist ítrekað eftir samskiptum við "stúlkuna" á MSN þar sem hann játaði meðal annars að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við og þar með brotið gegn öðrum börnum. Þriðjudaginn 8. janúar sl., daginn eftir umfjöllun Kastljóss um Karl Vigni Þorsteinsson, setti maðurinn sig enn á ný í samband við "stúlkuna." Hinn 15. janúar mælti Sölvi sér mót við manninn, sem taldi sig vera að fara að hitta stúlkuna, við bílaplanið á Kjarvalsstöðum. (Sjá myndskeið með frétt.) Maðurinn, sem er kvæntur og á börn og barnabörn, samþykkti síðan að veita viðtal daginn eftir gegn því að hann þekktist ekki á mynd. Eins og aðrir í hans stöðu er maðurinn í afneitun og sagðist ekki haldinn barnagirnd heldur afsakaði hegðun sína með vísan til þess að hann væri með "spennufíkn," en í viðtalinu í þættinum Málinu varð manninum mjög tíðrætt um umrædda "spennufíkn" sína og vildi aldrei gangast við barnahneigð af nokkru tagi. Í MSN-spjalli við Sölva, þegar maðurinn taldi sig vera að að ræða við stúlkubarnið eins og að framan greinir, sendi maðurinn mynd af ungri íslenskri stúlku í kynferðislegum stellingum sem hann hafði fengið hjá vini sínum. Í viðtalinu segir maðurinn að þessi sami vinur hans hafi ítrekað haft kynni af stúlkum á unglingsaldri í Hagaskóla og mögulega brotið gegn þeim kynferðislega. Þau kynferðisbrot sem maðurinn sjálfur játaði geta varðað allt að sextán ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum og verður lögreglu afhent upptaka af þættinum. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Deildarstjóri í Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira