Læknafeðgar spila saman í fyrsta sinn Freyr Bjarnason skrifar 23. janúar 2013 07:00 Feðgarnir Haukur Heiðar Hauksson og Haukur heiðar Ingólfsson.fréttablaðið/anton
Feðgarnir Haukur Heiðar Hauksson úr hljómsveitinni Diktu og Haukur Heiðar Ingólfsson spila saman á læknatónleikum á Rósenberg annað kvöld. Þetta verður í fyrsta sinn sem þeir spila saman opinberlega. „Það er ótrúlega gaman að vinna með pabba. Hann er búinn að gera músík í 300 ár og það er gaman að komast inn í allt annan vinkil á músík en maður hefur verið í sjálfur, þessu rokk-poppdæmi, á meðan hann er í rólegri og ljúfri tónlist," segir Haukur Heiðar yngri. Pabbi hans hefur spilað undir hjá Ómari Ragnarssyni í fjölda ára og gefið út sex plötur. Sú síðasta, Á rómantískum nótum, kom út fyrir jól og þar söng sonur hans einmitt eitt lag. „Hann er að mínu mati með rödd sem hentar ágætlega í þá músík sem ég hef mest spilað," segir Haukur Heiðar eldri. „Ég hef áhuga á þessari amerísku söngbók; Frank Sinatra, Dean Martin og þessum köppum. Hann [Haukur yngri] hefur rödd sem mér finnst falla vel inn í svona ballöður." Haukur Heiðar yngri hlakkar mikið til að stíga á svið með föður sínum en beiðni um að þeir træðu upp saman kom fram á fyrstu læknatónleikunum í nýrri tónleikaröð sem voru haldnir á Rósenberg í fyrra. Þá var faðir hans staddur í útlöndum. Haukur Heiðar kom þá einn fram með kassagítarinn og spilaði meðal annars lag sem hann hafði samið samdægurs. „Það var virkilega gaman og fullt hús," segir hann og bætir við að á tónleikunum á fimmtudaginn muni hann syngja við undirleik föður síns. „Við ætlum að taka eitt lag með Diktu og svo standarda sem hann hefur verið að spila."
Mest lesið Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Menning Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina Lífið samstarf Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira