Lífið

Vill vera Steele

Leikkonan Krysten Ritter gæti hugsað sér að taka að sér hlutverk Anastasiu Steele.
nordicphotos/getty
Leikkonan Krysten Ritter gæti hugsað sér að taka að sér hlutverk Anastasiu Steele. nordicphotos/getty
Leikkonan Krysten Ritter hefur verið orðuð við hlutverk Anastasiu Steele, söguhetju bókanna Fifty Shades of Grey, í kvikmynd sem byggð verður á bókinni. Ritter er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Jane Margolis í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad.

Aðrar leikkonur sem orðaðar hafa verið við hlutverkið eru Mila Kunis, Emma Watson, Anne Hathaway og Ashley Greene. Ritter þakkaði fyrir áhugann á Twitter-síðu sinni með orðunum: „Takk, ég væri til í þetta.“ Leikararnir Ryan Gosling, Alexander Skarsgaard og Ian Somerhalder þykja fýsilegir í hlutverk viðskiptajöfursins Christian Grey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.