Grínistar í skiptinámi 21. mars 2013 12:00 uppistandið vinsælt Ari Eldjárn kemur fram á tveimur sýningum í apríl ásamt kollegum sínum frá Noregi og Kanada. fréttablaðið/gva „
Það er rosalega kalt í þessum löndum en greinilega hlýtt á milli þeirra sem þar búa,“ segir grínistinn Ari Eldjárn. Hann kemur fram á tveimur sýningum í apríl ásamt kanadíska uppistandaranum Craig Campbell og Norðmanninum Jonas Kinge Bergland. Ari segir uppistandara frá ólíkum löndum halda sambandi sín á milli og líkir því við hálfgert skiptinám. „Þetta er eins og Nordjobb nema hér fara menn á milli landa til að vinna í uppistandi,“ segir hann. Uppistandararnir sem koma fram með Ara eru báðir vel þekktir í heimalöndum sínum og víðar. Campbell hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti grínisti Bretlands og ásamt því að koma fram einn hefur hann líka verið reglulegur gestur í sjónvarpsþáttunum Michael McIntyre‘s Comedy Roadshow sem og hitað upp fyrir Frankie Boyle. Bergland er einn vinsælasti grínisti Noregs og vann meðal annars til verðlauna fyrir bestu uppistandssýninguna í Noregi í fyrra. Hann er læknir að mennt og sinnir gríninu samhliða læknisstarfinu. „Jonas er svo góður að hann hefur varla tíma til þess að vinna sem læknir því hann er svo eftirsóttur uppistandari,” segir Ari um kollega sinn. Sýningin, sem ber yfirskriftina Uppistand – Kanada Ísland Noregur, fer fram í Þjóðleikhúskjallaranum þann 5. apríl og í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri kvöldið eftir. Miða á sýningarnar er hægt að kaupa á Midi.is. sara@frettabladid.is
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira