Of mikilla upplýsinga krafist af stjórnendum 28. ágúst 2012 07:30 Fjármálaeftirlitið Ekki má efast um fjárhagslegt óhæði stjórnenda fjármálafyrirtækja gagnvart lánveitendum og kröfuhöfum og tekjur þeirra verða að duga til framfærslu og afborgana á skuldum, segir Fjármálaeftirlitið.
Persónuvernd segir Fjármálaeftirlitið krefjast of víðtækra persónulegra upplýsinga í því skyni að ganga úr skugga um fjárhagslegt sjálfstæði stjórnenda fjármálafyrirtækja. Kona í stjórn fjármálafyrirtækis felldi sig ekki við kröfur Fjármálaeftirlitsins (FME) um hagi hennar og manns hennar og sneri sér til Persónuverndar. Henni hafði verið gert að fylla út eyðublað þar sem óskað var ýtarlegra upplýsinga um fjárhag þeirra hjóna og helstu fjölskylduaðstæður. „Með eyðublaðinu er gert ráð fyrir að veittar séu upplýsingar um eignir, þar á meðal fasteignir, bifreiðar, innlendar og erlendar innistæður, skráð og óskráð hluta- og skuldabréf og hlutdeildarskírteini lífeyrissjóða. Einnig um skuldir, það er húsnæðislán, skammtímaskuldir, svo sem yfirdrátt og greiðslukortaskuldir, námslán og aðrar skuldir. Að auki um árstekjur eftir skatta, þar á meðal fjármagnstekjur og tekjur maka. Loks um mánaðarleg gjöld vegna húsnæðis, bílaláns, skammtímaskulda, námslána, annarra skulda, meðlags og framfærslu fjölskyldu," eru málavextir útskýrðir í ákvörðun Persónuverndar. Í erindi sínu til Persónuverndar kvaðst konan telja upplýsingaöflun FME „fara langt út fyrir það sem eðlilegt gæti talist miðað við þá stjórnarsetu sem um var að ræða í hennar tilviki", segir í ákvörðun stofnunarinnar. Á FME hvílir sú lagaskylda að kanna hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna fjármálafyrirtækja. Í bréfi stofnunarinnar til Persónuverndar er bent á að frá árinu 2010 sé fjárhagslegt sjálfstæði þessa fólks einn sá þáttur sem FME beri að kanna. Kveðst FME hafa útbúið eyðublað þar sem fram komi upplýsingar um „fjárhagslegt heilbrigði" viðkomandi einstaklinga. „Við mat á fjárhagslegu sjálfstæði stjórnarmanna lítur Fjármálaeftirlitið meðal annars til þess að eiginfjárstaða sé jákvæð og/eða tekjur maka standi undir afborgunum af skuldum og framfærslu, að skuldir, ábyrgðir gagnvart þriðja aðila og veðsetning eigna séu ekki þess eðlis að efast megi um óhæði gagnvart lánveitanda/kröfuhafa og annarra atriða en að framan greinir sem máli geta skipt," segir FME. Persónuvernd segir að vinnsla persónuupplýsinga skuli meðal annars vera í skýrum og málefnalegum tilgangi og að persónuupplýsingar skuli vera viðeigandi og ekki umfram nauðsyn. Í eyðublaði FME séu engin takmörk eða viðmið sett, til dæmis um verulega fjármuni eða ábyrgðir eða eðli og umfang skulda. „Til dæmis virðist þurfa með sama hætti að greina FME frá óverulegum meðlagsskuldum og milljónalánum vegna hlutabréfakaupa," segir Persónuvernd sem kveður FME þurfa að afmarka með skýrari hætti hvaða persónuupplýsingar séu nauðsynlegar vegna mats á fjárhagslegu sjálfstæði. Á meðan á málarekstrinum stóð breytti FME reglum þannig að nú þarf umboð maka viðkomandi til þess að upplýsingar um makann fari til FME. gar@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Erlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Fleiri fréttir Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Sjá meira