Páll Óskar fékk nóg og kallar sig nú Hinn gaurinn 29. október 2012 09:38 Páll Óskar Hallgrímsson kallar sig hinn gaurinn í símaskránni til að aðgreina sig frá poppstjörnunni. Fréttablaðið/Stefán
Hann heitir Páll Óskar Hallgrímsson og kallar sig í símaskránni Hinn gaurinn. Þannig vill hann aðgreina sig frá popparanum og nafna sínum Páli Óskari Hjálmtýssyni. "Kornið sem fyllti mælinn var þegar einhver strákur hringdi í mig og hélt að ég væri poppstjarnan. Hann spurði mig um ráð hvernig ætti að koma út úr skápnum. Ég held að hann hafi verið fjórtán eða fimmtán ára. Daginn eftir breytti ég þessu," segir Páll Óskar. Þetta var fyrir um ári og eftir það hefur hann verið laus við "böggið". Fram að því hafði hann lent í frekar mörgum símaötum og var orðinn mjög þreyttur á því, eins og gefur að skilja. Spurður hvort hann sé aðdáandi Palla segir hann nafna sinn vera alveg ágætan. "En ég er samt enginn rosalegur aðdáandi." Páll Óskar Hallgrímsson er 23 ára flugnemi. Hann kveðst einu sinni hafa hitt söngvarann. "Ég held ég hafi rekist á hann einu sinni þegar ég var lítill þegar hann gaf út nýja plötu, til að fá eiginhandaráritun eða eitthvað þannig. Ég man voða lítið eftir því." Hann segist aldrei hafa íhugað að taka nafnið sitt úr símaskránni til að losna við símaatið. En hafa vinir hans eða skólafélagar eitthvað gert grín að honum vegna nafngiftarinnar? "Þeir gerðu það í fyrstu en síðan verða þessir brandarar gamlir mjög hratt." Sjö sem heita Páll Óskar í þjóðskránniAlls eru það sjö sem heita Páll Óskar í þjóðskránni. Tveir þeirra eru búsettir erlendis og því eru þeir fimm hér á landi. Popparinn Páll Óskar er elstur nafnanna, eða 42 ára, en sá yngsti er 19 ára og býr í Noregi.Ef fleiri þekktir söngvarar eru skoðaðir þá á Björgvin Halldórsson einn alnafna sem er einnig í tónlistarbransanum, í hljómsveitinni Elephant Poetry. Alls eru Bjöggarnir sjö talsins rétt eins og Pallarnir. Sá elsti er hvorki meira né minna en 100 ára gamall á meðan Bo Hall sjálfur er 61 árs. Sá yngsti er aftur á móti 18 ára.Tvær Sigríðar Beinteinsdætur eru til. Önnur býr á Akranesi en hin, söngkonan Sigga Beinteins, í Kópavoginum. Þegar röðin kemur að popparanum Ásgeiri Trausta Einarssyni er hann sá eini hér á landi samkvæmt þjóðskránni en á hinn bóginn eru ellefu Bjarkir Guðmundsdætur skráðar.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Fleiri fréttir Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Sjá meira