Vilja flytja sendiráð Norðurlanda á Íslandi undir sama þak Þorbjörn Þórðarson í Helsinki skrifar skrifar 31. október 2012 15:05 Utanríkisráðherrar Norðurlandanna á fundinum í Helsinki í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra sat fundinn í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar. Magnus Fröderberg/norden.org
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna telja æskilegt að flytja sendiráð Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands á Íslandi í eitt og sama húsnæði. Þetta kom fram á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, sat fundinn í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar sem er heima á Íslandi með flensu. Norðurlöndin ætla að auka samvinnu sína við rekstur sendiráða enn frekar til að ná fram auknum sparnaði og styrkja diplómatísk tengsl. Í næsta mánuði verður sameiginleg sendiráðsskrifstofa opnuð í Rangoon í Búrma, en þar munu Danir, Norðmenn og Svíar deila aðstöðu. Þá ætla Norðmenn og Danir að deila sendiráðsskrifstofu í Islamabad í Pakistan sem á að opna á árinu 2014. Þá eru í burðarliðnum áform um opnun sameiginlegrar skrifstofu Svía, Norðmanna og Finna í Hanoi í Víetnam árið 2016. Þá ætla Danir, Svíar og Norðmenn að deila skrifstofu í Dhaka í Bangladesh og á hún að opna 2015. From kom á fundinum í Helsinki í dag að utanríkisráðherrar Norðurlandanna legðu ekki aðeins áherslu á að deila vinnuaðstöðu í þágu sparnaðar í þriðju ríkjum, heldur einnig á Norðurlöndunum sjálfum, en ráðherrarnir eru sammála um að sameiginleg sendiráðsskrifstofa í Reykjavík sé æskileg. Þar myndu Svíar, Danir, Norðmenn og Finnar deila vinnuaðstöðu. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin ennþá um hvort og hvenær þau áform verði að veruleika.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Fleiri fréttir Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sakar mótframbjóðanda um trúnaðarbrest og kallar eftir prófkjöri Leigubílar verði á lituðum númeraplötum Sjá meira