Innlent

Vilja flytja sendiráð Norðurlanda á Íslandi undir sama þak

Þorbjörn Þórðarson í Helsinki skrifar skrifar
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna á fundinum í Helsinki í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra sat fundinn í  fjarveru Össurar Skarphéðinssonar.
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna á fundinum í Helsinki í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra sat fundinn í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar. Magnus Fröderberg/norden.org
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna telja æskilegt að flytja sendiráð Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands á Íslandi í eitt og sama húsnæði.

Þetta kom fram á fundi utanríkisráðherra Norðurlandanna á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, sat fundinn í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar sem er heima á Íslandi með flensu.

Norðurlöndin ætla að auka samvinnu sína við rekstur sendiráða enn frekar til að ná fram auknum sparnaði og styrkja diplómatísk tengsl. Í næsta mánuði verður sameiginleg sendiráðsskrifstofa opnuð í Rangoon í Búrma, en þar munu Danir, Norðmenn og Svíar deila aðstöðu. Þá ætla Norðmenn og Danir að deila sendiráðsskrifstofu í Islamabad í Pakistan sem á að opna á árinu 2014.

Þá eru í burðarliðnum áform um opnun sameiginlegrar skrifstofu Svía, Norðmanna og Finna í Hanoi í Víetnam árið 2016. Þá ætla Danir, Svíar og Norðmenn að deila skrifstofu í Dhaka í Bangladesh og á hún að opna 2015.

From kom á fundinum í Helsinki í dag að utanríkisráðherrar Norðurlandanna legðu ekki aðeins áherslu á að deila vinnuaðstöðu í þágu sparnaðar í þriðju ríkjum, heldur einnig á Norðurlöndunum sjálfum, en ráðherrarnir eru sammála um að sameiginleg sendiráðsskrifstofa í Reykjavík sé æskileg. Þar myndu Svíar, Danir, Norðmenn og Finnar deila vinnuaðstöðu. Engin ákvörðun hefur hins vegar verið tekin ennþá um hvort og hvenær þau áform verði að veruleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×