Verulegar líkur á uppsögn kjarasamninga í janúar 18. apríl 2012 15:32
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins segir að verulegar líkur séu á því að heimild til uppsagnar kjarasamninga muni skapast í janúar á næsta ári. Þetta kom fram í ræðu Vilmundar á aðalfundi SA sem fram fór í dag. Þar benti hann á að kjarasamningarnir sem nú séu í gildi séu bundnir forsendum um þróun kaupmáttar, verðbólgu, gengi krónunnar og efndum ríkisstjórnarinnar. Vilmundur bendir á að í janúar á næsta ári, þegar samningarnir verða endurskoðaðir, stefni í að gengi krónunnar verði mun lægra en forsendur samninganna geri ráð fyrir. Þá hafi launakostnaður aukist verulega meira en samningarnir fólu í sér auk þess sem óvissa ríki um þróun kaupmáttar þar sem verðbólga virðist ætla verða meiri en gert var ráð fyrir. Vilmundur sagði að vandi atvinnulífsins sé sá að gert hafi verið ráð fyrir að aukin umsvif í hagkerfinu myndu létta undir með fyrirtækjunum að standa undir launahækkunum. „Enn eru fjárfestingar í algeru lágmarki og ekki sjáanlegar neinar verulegar breytingar þar á. Það eru því verulegar líkur á því að heimild til uppsagnar kjarasamninga muni skapast í janúar 2013. Aðstæður bjóða hins vegar alls ekki upp á svigrúm til frekari launahækkana en þeirra sem um var samið fyrir nær ári síðan."Ræðu Vilmundar má í heild sinni lesa hér.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira