Ögmundur vill sjá hvað hangir á spýtunni í Nubo málinu 10. febrúar 2012 16:55
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ekki hafa fylgst með þeim samningaviðræðum sem nú eru í gangi á milli sveitarfélagsins Norðurþings og kínverska auðkýfingsins Huang Nubo. Fréttastofa greindi frá því á dögunum að Norðurþing íhugi að kaupa Grímsstaði á fjöllum með láni frá Nubo og leigja honum hana síðan. Ögmundur, sem á sínum tíma hafnaði beiðni Nubos um kaup á Grímsstöðum, segir í samtali við Fréttastofu að hann vilji sjá hvað út úr þessum viðræðum komi áður en hann tjái sig um þær. Hann segist þó gefa sér að menn séu ekki að reyna að „fara inn bakdyramegin" í þessu máli, eins og hann orðar það en sveitarstjóri Norðurþings fór til Peking á dögunum til viðræðna við Nubo. „Markmiðið er að við höldum Íslandi í eignarhaldi hér innanlands, og helst viljum við öræfin í almannaeign. En ég hef ekki haft neinar spurnir af því hvað sveitarstjórnarmenn eru að ræða þarna austur í Peking," segir Ögmundur en hann vill hafa alla fyrirvara á þessu máli uns hann sjái hvað hangi á spýtunni. Hann bendir jafnframt á að stundum geti leiga á landi verið ígildi eignarhalds. „Þess vegna er það sett inn í lög að ef leiga er til langs tíma þá þurfi það að koma til kasta innanríkisráðuneytisins og til skoðunar. En það eru undantekningar á þeim lögum í öðrum lagabálki." Ögmundur segist vilja sjá hvað út úr þessu komi fyrst. „Svo verður þetta mátað við veruleikann. Ég hef þó leyft mér að hafa uppi varnaðarorð þegar menn eru að bjóða fram mjög mikla peninga. Það hefur ekki reynst Íslendingum sérstaklega farsælt. En við skulum bara ætla mönnum allt hið besta og sjá hvað kemur út úr þessu."
Mest lesið „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Innlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Innlent Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Fleiri fréttir „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Sjá meira